Ísland leikur æfingarleik gegn Bandaríkjunum annað kvöld í Los Angeles en í íslenska liðið vantar flesta leikmennina sem byrjuðu leikina í undankeppni EM.
„Klinsmann er með leikmennina í þriggja vikna undirbúningi og hann er með tvíþætt markmið. U23 árs liðið er að fara að spila stóran leik í forkeppni Ólympíuleikanna og A-landsliðið er að fara í erfiða leiki í mars.“
Heimir segir að verkefnið sé það sama hjá báðum þjálfarateymunum. Verið sé að bæta við hópinn og skoða leikmenn sem hafa verið utan hóps.
„Við erum að skoða stráka sem eru búnir að vera að stíga upp og spila mikið, meðal annars úr U-21 árs landsliðinu. Við erum að reyna að breikka hópinn fyrir framtíðina og fá fleiri sem berjast um sæti til Frakklands,“ sagði Heimir en viðtalið við hann má sjá hér fyrir neðan.