Fyrstu myndir af fyrirhuguðu hóteli við Austurvöll Birta Björnsdóttir skrifar 9. febrúar 2016 21:00
Áætlað er að umdeilt hótel á svokölluðum Landsímareit opni eftir tvö ár. Alþingi hefur fallið frá kæru gegn Reykjavíkurborg vegna deiliskipulags á svæðinu. Talsverður styr hefur staðið um fyrirhugaðar breytingar á svokölluðum Landsímareit og hafa menn skipst í andstæðar fylkingar um ágæti þess að reisa hótel við Austurvöll. Fyrirhuguð er hinsvegar uppbygging á svæðinu þegar 160 herbergja Icelandair Hotel rís á reitnum, en áætluð verklok eru eftir tvö ár. THG arkitektar eiga veg og vanda að hönnun bygginga á reitnum og gefa þessar frumtillögur tilfinningu fyrir lokaniðurstöðunni þó útlit bygginga sé enn í vinnslu. Ljóst er að ásýnd Austurvallar og nágrennis kemur til með að taka umtalsverðum breytinum með tilkomu hótelsins. „Mér sýnist teikningarnar vera í samræmi við samþykkt deiliskipulag en það á auðvitað eftir að rýna það enn frekar. Reykjavíkurborg leggur ríka áherslu á að þarna verði vandað til verka," segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.Hjálmar segir næstu mánuði fara í að rýna teikningar nákvæmlega með samþykkt deiliskipulag til hliðsjónar. Sem fyrr segir eru fyrirhugaðar framkvæmdir umdeildar. Átján þúsund manns mótmæltu fyrirhuguðum framkvæmdum með undirskriftum og árið 2013 lagði Alþingi fram kæru á hendur borginni vegna samþykktar á deiliskipulaginu. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sagði í samtali við fréttastofu að kæran hafi verið látin niður falla eftir að ákveðin skilyrði Alþingis voru samþykkt af hálfu lóðareiganda. „Það skiptir auðvitað miklu máli að nábýlið við Alþingi verði eins og best verður á kosið. Það kemur meðal annars fram í deiliskipulaginu að umferð í Kirkjustræti verði tempruð og sú gamla gata verði færð aftur til síns gamla horfs," segir Hjálmar. Samkvæmt teikningum verða inngangur og aðal útisvæði hótelsins verður í Fógetagarðinum.Er ekki með því verið að ganga á svæði í eigu borgarbúa? „Það er eitt af því sem þarf að skoða mjög vel. Það er algjört skilyrði að bæði Austurvöllur og Víkurgarður verði áfram almenningsrými þar sem allir geti verið hvenær sem þeim sýnist," segir Hjálmar.
Mest lesið Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Áhersla á öryggi viðskiptavina Samstarf Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga Neytendur Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Viðskipti innlent Fleiri fréttir Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Hundrað manna hjúkrunarheimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti Taka tvö í Vesturbugt Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó Jón nýr forstjóri Veritas Sjá meira