Tattóveraður þungarokkari í yfirvigt á Frímúrarafundi Jón Kaldal skrifar 18. febrúar 2016 10:28 Þota Atlanta kom til Cardiff í nótt frá Dubai þar sem hún var merkt Iron Maiden. Á meðan tónleikaferð hljómsveitarinnar stendur mun hún vera kennd við einkennisfígúru Iron Maiden beinagrindina Eddie the Head, og ganga undir nafninu Ed Force One. Ljósmynd/Air Atlanta
Enska þungarokkssveitin Iron Maiden leggur á morgun af stað í tónleikaferð um sex heimsálfur í Boeing 747-400 Jumbo þotu frá íslenska flugfélaginu Air Atlanta. Söngvari hljómsveitarinnar, Bruce Dickinson, mun fljúga vélinni en áhöfn frá Atlanta verður honum til halds og traust í ferðinni, sem mun standa í rúmlega fimm mánuði og liggja um 35 lönd.Dickinson hefur tvisvar áður verið í flugmannssætinu á tónleikaferðum Iron MaidenMynd/Ljósmynd Air AtlantaVélin hefur verið máluð með vígalegum einkennismerkjum hljómsveitarinnar og verður frumsýnd í Cardiff í Wales í dag að viðstöddum fulltrúum frá helstu fjölmiðlum Bretlands. Það mun ekki fara á milli mála hverjir eru á ferð þegar vélin lendir á flugvöllum á ferð sinni um heiminn. Tröllvaxin 747-Jumbo þotan með sína stóru kryppu sker sig alla jafnan úr hópi flugvéla, en með risamynd af hrikalegri einkennisfígúru Iron Maiden verður hún eins tattóveraður þungarokkari í yfirvigt á Frímúrarafundi.Vélin hefur verið máluð með vígalegum einkennismerkjum hljómsveitarinnar og verður frumsýnd í Cardiff í Wales í dag að viðstöddum fulltrúum frá helstu fjölmiðlum Bretlands.Ljósmynd/Air AtlantaBruce Dickinson er mikill flugáhugamaður og hefur verið með atvinnuflugmannsréttindi um árabil, en eins og eflaust margir muna flaug hann um tíma farþegaþotum fyrir Iceland Express. Dickinson hefur tvisvar áður verið í flugmannssætinu á tónleikaferðum Iron Maiden en fyrir þessa ferð þurfti hann að setjast á skólabekk til að sækja sér réttindi á Boeing 747-400 þotu. Jumbo vélin er tvöfalt stærri en Boeing-757, sem er ein algengasta farþegaflugvél heims.Þeir staðir sem heimsóttir verða á tónleikaferðalaginu.Ljósmynd/Air AtlantaIron Maiden fékk Atlanta til að breyta vélinni verulega fyrir ferðina. Meðal annars er búið að setja upp bar en auk hljómsveitarinnar, rótara og fylgdarliðs verða um borð tólf tonn af hljómtækjum, ljósum og öðrum tónleikabúnaði. Tónleikaferðin kallast „The Book of Souls Tour∏ og verða fyrstu tónleikarnir í Fort Lauderdale í Flórída þann 24. febrúar.
Tengdar fréttir Iron Maiden á breiðþotu frá Air Atlanta Icelandic í risa tónleikaferð um heiminn „Þegar vinir mínir hjá Air Atlanta Icelandic buðu fram 747 vélina til leigu fyrir The Book of Souls-tónleikaferðina stukkum við að sjálfsögðu á það tækifæri.“ 25. ágúst 2015 21:25 Mest lesið „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Mjög algengt að foreldra minnki við sig til að aðstoða börnin við að kaupa fyrstu eign Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Fleiri fréttir Mjög algengt að foreldra minnki við sig til að aðstoða börnin við að kaupa fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Sjá meira
Iron Maiden á breiðþotu frá Air Atlanta Icelandic í risa tónleikaferð um heiminn „Þegar vinir mínir hjá Air Atlanta Icelandic buðu fram 747 vélina til leigu fyrir The Book of Souls-tónleikaferðina stukkum við að sjálfsögðu á það tækifæri.“ 25. ágúst 2015 21:25