Sport

Tengdapabbi Murray hneig niður vegna slæms sushi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hugað að Nigel Sears á Opna ástralska.
Hugað að Nigel Sears á Opna ástralska. Vísir/Getty
Nigel Sears, tengdafaðir tenniskappans Andy Murray og tennisþjálfari, segir að of mikið hafi verið gert úr því þegar hann hneig niður á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í síðustu viku.

Sears er þjálfari hinnar serbnesku Önu Ivanovic og var að horfa á hana spila á mótinu þegar hann hneig skyndilega niður í áhorfendastúkunni. Hann var fluttur á brott í sjúkrabíl og þurfti að gera hlé á viðureigninni á meðan.

Samtímis var Murray að spila og fékk hann ekki fregnir af þessu fyrr en að henni lokinni.

„Ég held að ég hafi ekki verið úrvinda eða reyna of mikið á mig,“ sagði Sears í viðtali við breska fjölmiðla. „Ég veit að þetta var mikið í fréttum hér heima en þetta var virkilega skrýtið allt saman og mér þykir leitt að hafa valdið fólki óþarfa áhyggjum.“

Ana Ivanovic.Vísir/Getty
„Í sannleika sagt finnst mér ég vera hálfgerður loddari út af þessu,“ bætti hann við.

Enn er ekki vitað með fullvissu hvað olli því að Sears hneig niður en sjálfur telur hann að um matareitrun hafi verið að ræða.

„Ég hafði borðað sushi tíu daga í röð í Melbourne og mér leið vel. En ætli líkurnar séu ekki á því að maður fái einn slæman fiskbita þegar maður borðar svo mikið af sushi.“

Dóttir Sears, Kim, var ólétt þegar atvikið átti sér stað en hún eignaðist dóttur fyrir stuttu síðan. Ivanovic var að keppa við hina bandarísku Madison Keyes þegar þjálfari hennar hneig niður og tapaði viðureigninni eftir að hafa unnið fyrsta settið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×