Viðskipti innlent

Ísland að verða álitið hönnunarland

Sæunn Gísladóttir skrifar
Elín Þorgeirsdóttir segir að öll árin á DesignMatch hafi einhver íslenskur hönnuður náð að tengjast erlendu fyrirtæki.
Elín Þorgeirsdóttir segir að öll árin á DesignMatch hafi einhver íslenskur hönnuður náð að tengjast erlendu fyrirtæki. Vísir/Stefán
Á DesignMatch, kaupstefnu á vegum HönnunarMars í samstarfi við Arion banka, býðst hönnuðum að hitta erlenda kaupendur og framleiðendur sem annars er erfitt að komast í kynni við. Þetta er dýrmætt tækifæri fyrir íslenska hönnuði og öll árin hefur einhver hönnuður náð að tengjast erlendu fyrirtæki að sögn Elínar Þorgeirsdóttur, ritstjóra og fjölmiðlafulltrúa HönnunarMars.

DesignMatch verður haldin í sjöunda skipti í ár. Á kaupstefnunni sækja íslenskir hönnuðir um að fá viðtal við hönnunarhús sem getur svo leitt til samvinnu milli aðilanna.

„Það er sjaldgæft að stofnun á borð við Hönnunarmiðstöð búi til þennan vettvang fyrir hönnuði til að koma sér á framfæri alþjóðlega. Við erum með frábæra hönnuði á Íslandi, en til að ná árangri í viðskiptum, þá þarftu eiginlega að ná athygli á alþjóðamarkaði. Kaupstefnan styttir þessi skref fyrir hönnuðina,“ segir Elín.

Í ár koma mörg þekkt fyrirtæki til landsins, meðal annars Ferm Living, og Normann Copenhagen frá Danmörku, og Vitra, Artek sem er frá Svíþjóð og Sviss, auk tískufyrirtækjanna Wood Wood og Aplace.

Í fyrsta sinn munu sérvaldir erlendir blaðamenn, meðal annars frá tímaritunum Dezeen, Frame og Elle Decoration, taka þátt í kaupstefnunni. Þátttakendur munu því eiga möguleika á viðtali og kynningu í einhverjum af leiðandi hönnunarmiðlum heims.

Íslensk fyrirtæki á borð við Epal og Sýrusson taka einnig þátt í fyrsta skipti. Elín segir mikið tækifæri liggja í því fyrir íslenska hönnuði. „Það er erfitt fyrir fyrirtækin að fylgjast með öllu sem er að gerast í hönnun á landinu. Við vonum að þarna gerist einhverjir töfrar.“

Kaupstefnan fer fram 11. mars næstkomandi.

Hér má kynna sér hvernig er hægt að taka þátt.

Hér má kynna sér betur HönnunarMars 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×