Tónleikar á fjórum stöðum um allt land á sama tíma 27. febrúar 2016 09:00 Mammút er á meðal þeirra hljómsveita sem fram koma á tónleikunum 12. mars. VÍSIR/RONJA MOGENSEN „
Við erum að fagna 100 ára afmæli Alþýðusambandsins. Það hefur verið þannig í gegnum tíðina að það hafa ekki mátt koma saman fimm eða fleiri einstaklingar í verkalýðshreyfingunni, þá er búið að henda í söngbók, þannig að tónlistin hefur fylgt hreyfingunni alla tíð,“ segir Snorri Már Skúlason, deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála ASÍ, léttur í lundu. Í tilefni afmælisins þann 12. mars býður ASÍ til tónleika á fjórum stöðum á landinu á sama tíma. Þá verða 100 ár liðin frá því að 20 einstaklingar frá sjö verkalýðsfélögum bundust samtökum til að efla samtakamátt sinn í baráttunni fyrir bættum kjörum og Alþýðusambandið varð til.Uppfært: Afmælishátíð og tónleikaveisla ASÍ fer fram þann 12. mars næstkomandi en ekki í dag eins og fram kom í Fréttblaðinu í dag. Fréttastofa harmar þessi mistök og biðst innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þessar röngu upplýsingar hafa mögulega valdið. Þann 12. mars næstkomandi verður því fjölskylduskemmtun í Hörpu, þar sem boðið verður meðal annars upp á tónleika með Páli Óskari og Úlfi Úlfi í Norðurljósasalnum. Auk þess setur Hundur í óskilum upp stutta leiksýningu í Kaldalóni þar sem farið verður yfir athyglisverða hluti úr 100 ára sögu verkalýðshreyfingarinnar. „Við erum líka með þessu að reyna að ná til yngra fólksins og fengum Grím Atlason til að aðstoða okkur við að skipuleggja þetta,“ segir Snorri Már. Sama dag, þann 12. mars, klukkan 20.00 nánar tiltekið hefjast svo tónleikar á fjórum stöðum á landinu. Retro Stefson, Mannakorn, Valdimar, Hundur í óskilum og Mammút eru á meðal þeirra sem koma fram á tónleikum í Eldborgarsalnum í Hörpu. Þá fer fram ljósmyndasýning og tónleikar í Hofi á Akureyri, þar sem fram koma Agent Fresco, Ylja, Hvanndalsbræður og Emmsjé Gauti. Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fer fram ljósmyndasýning og tónleikar þar sem Mugison og Lára Rúnars koma fram. Í Egilsbúð í Neskaupstað verður einnig ljósmyndasýning og tónleikar þar sem Bjartmar Guðlaugs, Lay Low og Úlfur Úlfur troða upp. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að nálgast miða á tix.is, þó þarf ekki miða á fjölskylduskemmtunina. Nánar má lesa um herlegheitin á vefsíðu ASÍ.
Mest lesið Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign Lífið „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Lífið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Eminem verður afi Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Menning Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Fleiri fréttir Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Sjá meira