Erlent

Gengu hart fram gegn Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Marco Rubio, Donald Trump og Ted Cruz.
Marco Rubio, Donald Trump og Ted Cruz. Vísir/EPA
Hart var deilt í kappræðum á milli forsetaframbjóðenda Repúblikana í nótt. Kappræðurnar í nótt þykja mjög mikilvægar þar sem forval fer fram í ellefu ríkjum á þriðjudaginn. Ted Cruz og Marco Rubio notuðu því tækifærið til að reyna að hægja á Donald Trump.

Lítið fór fyrir öðrum frambjóðendum.

Þeir þrír eru efstir í forvalinu hingað til en bæði Cruz og Rubio réðust ítrekað á Donald Trump, sem hefur unnið þrjár af fjórum kosningum og eru sérfræðingar á því að Rubio hafi skarað framúr. Þrátt fyrir að kappræðurnar hafi oft á tíðum snúist um að framíköll og móðganir.

Rubio setti út á innflytjendastefnu Trump, utanríkismálastefnu hans, stefnuna varðandi heilbrigðiskerfið og margt fleira.

Á einum tímapunkti, þegar þeir voru allir að tala í einu benti Trump á þá báða og sagði Rubio vera hræddan við álag og Cruz vera lygara.

Rubio gagnrýndi Trump fyrir að hafa ráðið útlendinga í byggingastörf og að hafa verið sektaður fyrir að brjóta á réttindum verkamanna sinna. Trump skaut til baka og sagðist hafa ráðið tugi þúsunda en Rubio hefði aldrei ráðið neinn.

Þegar Trump veittist að Rubio fyrir sölu á húsi, sagði Rubio að ef Trump hefði ekki erft 200 milljónir dala frá föður sínum væri hann að selja úr á Manhattan í New York.

Hér að neðan má sjá nokkur af rifrildum næturinnar. Hægt er að sjá fleiri myndbönd á Youtubesíðu CNN, sem hélt kappræðurnar. Þar má meðal annars sjá viðtöl við frambjóðendur að kappræðunum loknum.

Málefni innflytjenda Rubio deilir á Trump fyrir ólöglega starfsmenn Heilbrigðiskerfið Rifrildi Trump og Rubio Trump og Rubio um Palestínu Trump og Cruz um hvor væri betri gegn Hillary Clinton Trump segir Cruz vera lygara Trump ætlar að láta Mexíkó borga vegginn Trump og Cruz deila



Fleiri fréttir

Sjá meira


×