Segir líf sitt í Mosul hafa verið erfitt Samúel Karl Ólason skrifar 24. febrúar 2016 10:43 Marlin Stivani Nivarlain í Kúrdistan. Mynd/KRSC
Sænsk táningsstúlka sem var í haldi Íslamska ríkisins þar til nýlega segir líf sitt í Mosul hafa verið erfitt. Hin sextán ára gamla Marlin Stivani Nivarlain flúði með kærasta sínum frá Svíþjóð og fóru þau til Sýrlands. Henni var bjargað af sérsveitum Kúrda en hún var nýverið í sjónvarpsviðtali í Kúrdistan. Stúlkan á að hafa ferðast frá Svíþjóð til Sýrlands í maí á síðasta ári og þaðan haldið yfir landamærin til Íraks. Henni var bjargað nærri borginni Mosul, næststærstu borg Íraks, þar sem liðsmenn ISIS ráða nú ríkjum. Í viðtalinu lýsir hún ferðalagi sínu til Sýrlands og Írak. Hún segist hafa samþykkt að fara með kærasta sínum, sem vildi ganga til liðs við ISIS. Hún segist ekkert hafa vitað um íslam né Íslamska ríkið. Hún var fimmtán ára gömul og kærasti hennar var nítján. Viðtalið má sjá hér á vef Kurdistan24.net. Hún talar ekki um son sinn, sem talið er að hún hafi eignast í nóvember og viðtalið virðist að mestu vera lesið upp eftir handriti. Eftir langt ferðalag með lestum og á puttanum fóru þau inn í Sýrland nærri bænum Gaziantep í Tyrklandi. Þau hafi verið flutt af vígamönnum til borgarinnar Mosul, þar sem þau hafi fengið hús. Þau hafi hvorki haft aðgang að rafmangi né vatni. „Í Svíþjóð höfðum við allt og þegar ég var þarna höfðum við ekkert.“ Stúlkan segist hafa komist í síma og náð sambandi við móður sína. Hún hafi talað við yfirvöld í Svíþjóð. Hún byrjar að nefna einhverja sem yfirvöld í Svíþjóð höfðu samband við en virðist vera stöðvuð.
Tengdar fréttir Sænskri stúlku bjargað frá liðsmönnum ISIS Stúlkunni var bjargað þann 17. febrúar í áhlaupi öryggissveita Kúrda nærri Mosul í Írak. 23. febrúar 2016 12:41 Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sjá meira
Sænskri stúlku bjargað frá liðsmönnum ISIS Stúlkunni var bjargað þann 17. febrúar í áhlaupi öryggissveita Kúrda nærri Mosul í Írak. 23. febrúar 2016 12:41