Embætti héraðssaksóknara bíður nú eftir að annað mál sem tengist annarri systurinni sem sökuð er um að hafa reynt að kúga fé úr forsætisráðherra á síðasta ári komi á borð þess. Fjárkúgunarmálið svokallaða er enn í vinnslu, samkvæmt skriflegu svari frá embættinu.
Systurnar, þær Hlín Einarsdóttir og Malín Brand, eru sakaðar um að hafa í fyrra krafist þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson greiddi átta milljónir króna eða upplýsingar sem sagðar voru viðkvæmar fyrir hann yrðu gerðar opinberar. Þær voru svo handteknar þegar þær hugðust sækja fjármunina við Vallarhverfið í Hafnarfirði.
Nokkrum dögum síðar voru þær kærðar fyrir aðra fjárkúgun en maðurinn sem lagði fram kæruna sagðist hafa greitt þeim 700 þúsund krónur gegn því að vera ekki sakaður um að hafa nauðgað Hlín. Hlín kærði manninn í kjölfarið fyrir nauðgun.
Vísir sendi héraðssaksóknara fyrirspurn um stöðu málsins og fengust þá fyrrgreindar upplýsingar án þess þó að þess væri getið hvaða mál það væri. Leiða má að því líkur að um sé að ræða nauðgunarkæruna.
Beðið eftir öðru máli tengdu fjárkúgunarsystrum
Tengdar fréttir
Malín fékk lánaðan Yaris hjá umboðinu sem systurnar óku á til að sækja fjárkúgunarféð
„Þetta er ekkert leyndarmál, hún var á Yaris frá okkur, það er bara svoleiðis,“ segir upplýsingafulltrúi Toyota.
Rannsókn fjárkúgunarmálsins lokið
Málið verður sent ríkissaksóknara í vikunni.
Hlín Einars: „Gerir mig afar sorgmædda að sjá með hvaða hætti systir mín firrir sig ábyrgð“
Hlín Einarsdóttir segist sorgmædd yfir orðum systur sinnar Malínar Brand í viðtali.
Hafa fengið niðurstöðu úr greiningu á lífsýnum sem fundust á fjárkúgunarbréfi
Lögreglan hefur ekki lokið rannsókn á fjárkúgunarmálunum.
Fjárkúgunin og nauðgunarkæra á leið til ríkissaksóknara
„Rannsókn er enn í gangi en lýkur vonandi fljótlega,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson.
Fjárkúgunarmálið bíður á borði héraðssaksóknara
Tveir mánuðir eru frá því að lögreglan lauk rannsókn málsins.