Bíó og sjónvarp

Stranglega bönnuð útgáfa af Batman v Superman: Dawn of Justice

Samúel Karl Ólason skrifar
Lengri og grófari útgáfa af Batman v Supermen: Dawn of Justice verður gefin út í sumar. Sjálf myndin verður þó frumsýnd þann 25. mars. Velgengni hinnar ofbeldisfullu Deadpool hefur sýnt fram á að markaður er fyrir stranglega bannaðar ofurhetjumyndir.

Upprunalega útgáfa myndarinnar verður þó eingöngu bönnuð börnum innan 13 ára í Bandaríkjunum. Sú útgáfa, sem verður sýnd í kvikmyndahúsum er tæplega tveir og hálfur tími að lengd.

Zack Snyder, leikstjóri myndarinnar, segir þó að reynslan af Lord of the Rings myndunum og lengri útgáfum þeirra hafi sýnt fram á að eftirspurnin sé til staðar. Samkvæmt Entertainment Weekly er þó ekki ljóst hve miklu aukaefni verði bætt við myndina.

Meðal þess sem var klippt úr þeirri mynd sem sýnd verður í kvikmyndahúsum er karakter Jena Malone, en ekki er vitað hvern hún leikur úr söguheimi DC Comics.

DC og Warner Bros ætla að gefa út minnst tvær ofurhetjumyndir á næstu árum og stendur til að gera ellefu myndir allt í allt. Þar á meðal eru Suicide Squad, tvær myndir um Justice League, Flash, Aquaman, Cyborg og Green Lantern.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.