Sigmundur skotspónn háðfugla á netinu Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2016 15:15 Sigmundur Davíð er í eldlínunni. vísir
Mikið hefur verið fjallað um fjármál Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, undanfarna daga og hefur verið fjallað um aflandsfélag hennar, Wintris Inc., á Bresku Jómfrúareyjunum. Sigmundur Davíð, forsætisráðherra, birti í dag grein á vefsíðu sinni þar sem hann segir að sér finnist lítið til þeirra koma sem vilja kenna konu hans við hrægamma, en Anna Sigurlaug var meðal kröfuhafa á hendur bönkunum í kjölfar fjármálahrunsins 2008. Háðfuglar á netinu vilja ýfa sínar fjaðrir, telja þarna upplagt tækifæri til að fíflast í forsætisráðherra. Sem dæmi má nefna að í dag birtir Baggalútur grein undir yfirskriftinni; Sigmundaveiðitímabilið hafið. Þar er talað um að Sigmundaveiðitímabilið svonefnda hafi hafist í vikunni. „En þá er gefið út skotleyfi á sitjandi forsætisráðherra — mörgum til mikillar ánægju. Hafa veiðimenn í stórum stíl farið á stjá og margir hverjir dregið fram „stóru byssurnar“, enda eru engin takmörk fyrir því með hvaða hætti má ráðast gegn Sigmundinum, eða hvaða brögðum má beita. Sigmundurinn hefur þó ekki gefið færi á sér, enda er hann afar styggur og fer ferða sinna að mestu í myrkri utan alfaraleiða.“ Hér að neðan má skoða aðrar skemmtilegar færslur þar sem netverjar gera sér mat úr málinu. "Sigmundur Davíð segir að konan sín sé ekki hrægammur." pic.twitter.com/FgdRh9xEK9— Árni Torfason (@arnitorfa) March 18, 2016 Sorrý, ég varð.Posted by Jóhannes Kjartansson on 17. mars 2016 hrægammur eða ekki. 1 fashion stig fyrir að rokka sixpensara við dúnúlpu. pic.twitter.com/WED55ny9ls— Berglind Festival (@ergblind) March 18, 2016 Hvað kallar Sigmundur Davíð peninginn sem hann fékk frá hrægömmunum? Vasapening.— Jón Benediktsson (@jonbenediktsson) March 17, 2016 Sigmundur Drumpf eða Donald Davíð. pic.twitter.com/36bsrv0n2Z— KonniWaage (@konninn) March 16, 2016 pic.twitter.com/dQa7a9Exyt— Páll Pétursson (@pallpeturs) March 18, 2016
Mest lesið Ingunn Lára gengin út með Celebi Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Það er töff að vera sauðfjárbóndi Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda Lífið Elt á röndum með drónum Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Lífið Fleiri fréttir Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Sjá meira