Lífið

Selurinn Sammy skríður yfir götu á hverjum degi til að heimsækja uppáhalds veitingastaðinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sammy sáttur.
Sammy sáttur. vísir
Selurinn Sammy skríður yfir sömu götuna á hverjum einasta degi til að heimsækja uppáhalds veitingastaðinn sinn.

Sammy elskar staðinn Lighthouse Seafood í Dublin á Írlandi og er vel tekið á móti honum þar.

Hann þarf að henda sér yfir umferðargötu þar sem umferðin liggur í báðar áttir. Starfsmenn staðarins gefa honum oftast fisk að borða og er hann einn sáttasti „viðskiptavinur“ staðarins.

Hér að neðan má sjá myndband af þessari daglegu rútínu Sammy.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×