Viðskipti innlent

Spá óbreyttum stýrivöxtum

Bjarki Ármannsson skrifar
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður tilkynnt næsta miðvikudag.
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður tilkynnt næsta miðvikudag. Vísir/Andri Marinó
Hagsjá Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi. Ákvörðun nefndarinnar verður tilkynnt næsta miðvikudag.

Í Hagsjánni er meðal annars bent á að fjöldi erlendra ferðamanna um Leifsstöð jókst í síðasta mánuði um 43 prósent milli ára. Þessi fjölgun er sögð styðja við gengi krónunnar og gefa nefndinni þannig svigrúm til að fara hægar en ella í hækkun stýrivaxta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×