Viðskipti innlent

Ábyrgar fjárfestingar – Hafa peningarnir þínir skoðanir? - bein útsending

Sæunn Gísladóttir skrifar
Mynd/VÍB
VÍB heldur opinn fræðslufund um ábyrgar fjárfestingar í Hörpu.

Umræða um ábyrgar fjárfestingar er víða lengra komin en á íslenskum fjármálamarkaði. Í Noregi hefur olíusjóðurinn sett sér strangar reglur um samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum og í Bandaríkjunum hafa David Chen hjá Equilibrium Capital og fleiri boðið upp á fjárfestingar þar sem áhersla er lögð á að skila góðri ávöxtun og hafa samtímis góð áhrif á samfélag og umhverfi.

David Chen heldur framsögu og ræðir ábyrgar fjárfestingar við fulltrúa úr íslensku atvinnulífi. Auk Chen verða í umræðum þau Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, Helga Hlín Hákonardóttir, lögmaður og meðeigandi hjá Strategíu og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.

Fundinn opnar Elín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VÍB og umræðum stýrir Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá fundinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×