Lífið

Fór á kostum sem Jennifer Lawrence, Celine Dion og Whitney Houston

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Söngkonan Ariana Grande var í aðalhlutveri í Saturday Night Live þætti gærdagsins og er óhætt er að segja að hún hafi farið á kostum. Auk þess að flytja tvö lög af væntanlegri plötu sinni, Dangerous Woman, þá sýndi hún á sér óþekktar hliðar í ýmsum grínatriðum.

Í einu þeirra þóttist hún vera starfsnemi hjá Tidal og hermdi eftir mörgum heimsþekktum tónlistarmönnum. Þar á meðal má nefna Britney Spears, Shakira, Celine Dion og Whitney Houston. Í öðrum þá þóttist hún vera Jennifer Lawrence í atriði þar sem gert var grín að Family Feud þáttunum sem Steve Harvey stýrir.

Hér að neðan má sjá samanburð á söng Grande og listamannanna sem hún hermir eftir. Einnig má sjá bort af frammistöðu hennar sem Jennifer Lawrence.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×