Viðskipti innlent

Svanhildur náði ekki kjöri

Sæunn Gísladóttir skrifar
Frá stjórnarfundi Icelandair Group í gær.
Frá stjórnarfundi Icelandair Group í gær. Vísir/Anton
Öll núverandi stjórn Icelandair Group bauð sig fram til áframhaldandi setu í stjórn félagsins á aðalfundi í gær, auk Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, athafnakonu. Svanhildur Nanna náði ekki kjöri og því situr stjórnin óbreytt.

Í stjórn Icelandair Group sitja nú Sigurður Helgason, stjórnarformaður, Úlfar Steindórsson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Magnús Magnússon.

Svanhildur Nanna bauð sig fram í nóvember í stjórn VÍS, en dró framboð sitt til baka, þar sem hún taldi ekki líkur á að hún næði kjöri í stjórn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×