Skoðun

Farvel VÍS

Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Samband mitt við VÍS og forvera þess spannar rúmlega fjörutíu ár. Á þeim árum hefur ýmislegt gengið á í starfi félagsins. Það hefur breyst úr því að vera gagnkvæmt tryggingafélag sem í raun er undir stjórn tryggingataka og í það að vera hlutafélag í eigu fárra.

Hlutafélagið hefur ítrekað orðið fyrir því að óvandaðir menn hafa farið þar um og afgreitt sig sjálfir. Nú á enn einu sinni að ryksuga fé út úr félaginu í þágu fárra, meira að segja á tíma þegar samtök alþýðu í landinu eiga ráðandi hlut í félaginu.

Allan þann tíma sem viðskiptasamband mitt og VÍS hefur staðið hefur undirritaður sýnt félaginu tryggð, líka á þeim tímum þegar brotsjóir spillingar riðu yfir, mest vegna þess að félagið ræður yfir afar færu og lipru starfsfólki sem hefur komið til liðs í þau fáu skipti sem óhöpp hafa ratað á fjörur mínar.

Nú þegar við blasir að ný kynslóð græðgismanna er mætt á sviðið og ætlar að endurtaka vonda siði fortíðarinnar, ætlar að skammta sér stórfé á kostnað tryggingartaka og eftir að hafa hækkað iðgjöld þeirra er mælirinn fullur. Í ljós hefur einnig komið að útgreiðsla væntanlegs arðs verður fjármögnuð með skulda­bréfaútgáfu með drjúgri ávöxtun. Viðskiptavinir munu að óbreyttu greiða herkostnaðinn af þessu.

Það er vandi að finna sér nýtt tryggingarfélag. Hin tvö stóru félögin hafa ratað sama græðgisveginn, meira að segja félag sem endurreist var fyrir skattfé og selt fjárfestum með drjúgu tapi ríkissjóðs. Almannahagur virðist ekki skipta þetta fólk neinu máli. Það er miður. Ég ætla hins vegar ekki að láta menn komast upp með þessa framkomu einu sinni enn og mun því leita á ný mið með viðskipti mín. Ég sé eftir þjónustulund starfsmanna VÍS og óska þeim alls hins besta. Ég vona að uppskera eigendanna verði í samræmi við sáninguna. Farvel VÍS.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×