Viðskipti innlent

Guðrún endurkjörin formaður SI

Sæunn Gísladóttir skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir er markaðsstjóri Kjöríss.
Guðrún Hafsteinsdóttir er markaðsstjóri Kjöríss. Vísir/Vilhelm
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 95 prósent greiddra atkvæða. Guðrún verður því formaður samtakanna fram að Iðnþingi 2017. Þetta kemur fram í frétt á vef SI. Kosningaþátttaka var 85,9 prósent.

Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetu. Kosið var um fimm sæti og hlutu þessi flest atkvæði: Agnes Ósk Guðjónsdóttir GK snyrtistofa, Árni Sigurjónsson Marel hf., Guðrún Jónsdóttir Héðinn hf., Egill Jónsson Össur hf., Eyjólfur Árni Rafnsson Mannvit hf.

Fyrir í stjórn samtakanna eru Gylfi Gíslason JÁVERK ehf., Katrín Pétursdóttir Lýsi hf., Lárus Jónsson Rafþjónustan slf. og Ragnar Guðmundsson Norðurál ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×