Viðskipti innlent

Kaptio hyggur á landvinninga í Bretlandi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Arn­ar Lauf­dal Ólafs­son og Ragn­ar Fjöln­is­son.
Arn­ar Lauf­dal Ólafs­son og Ragn­ar Fjöln­is­son. Mynd/Kaptio
Tæknifyrirtækið Kaptio ehf. hefur fengið tvo  nýja fjárfestingasjóði til liðs við sig, en sjóðirnir Frumtak 2 og Capital A Partners („Cap A“) hafa nú ásamt fyrri fjárfestum, Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og Kaski, fjárfest í fyrirtækinu fyrir 325 milljónir króna.

Ný fjármögnun er liður í því að gera Kaptio kleift að styrkja vöruþróun og sölu á Kaptio Travel lausninni á Bretlandsmarkaði og undirbúa frekari vöxt fyrirtækisins alþjóðlegum markaði. Kaptio opnaði söluskrifstofu í London núna í febrúar, en fyrirtækið rekur einnig þróunarskrifstofur í Heidelberg, Þýskalandi og Minsk, Hvíta-Rússlandi segir í tilkynningu.

Kaptio Tra­vel, aðalvara Kaptio, hjálpar ferðaskrif­stof­um og ferðaskipu­leggj­end­um að halda utan um tilboðsferli og bók­an­ir viðskipta­vina sinna á skil­virk­ari hátt en áður og auðveld­ar jafn­framt sam­skipti við end­ur­söluaðila og birgja. Hug­búnaðarlausn­in er hönnuð sem viðbót við Sa­les­force.com viðskiptatengslakerfið (CRM) en Sa­les­force er eitt þekktasta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum.

 „Áætlanir og framtíðarsýn Kaptio er mjög áhugaverð fyrir Frumtak 2, segir Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks 2, í tilkynningu. „Við höfum fylgst með góðu gengi hjá Arnari, Ragnari og teyminu hjá Kaptio um nokkurra ára skeið og hlökkum til að fylgja félaginu áleiðis til frekari vaxtar.“

„Ný fjármögnun kemur til með vera lykillinn að þeim verkefnum sem við áætlum á Bretlandsmarkaði á næstunni.“, sagði Arnar Laufdal, framkvæmdastjóri Kaptio. „Við erum byrjuð að markaðssetja Kaptio Travel hugbúnaðinn okkar þar, sem er sérlausn hönnuð fyrir ferðaþjónustugeirann. Þetta er einstök vara á sínu sviði og umbyltir verklagi og verkferlum þegar kemur að tilboðum og bókunum. Hagræðingin og þægindin er ótvíræð fyrir seljandann en að sama skapi færi kaupandi ferðaþjónustu persónulegri og meira sérsniðna þjónustu.“, sagði Arnar.

„Við munum þróa áfram Kaptio Travel lausnina en hún er byggð á grundvelli Salesforce. Framtíðin liggur í því að hægt verði að þróa sérlausnir fyrir ákveðna atvinnuvegi út frá sama umhverfi.“, sagði Ragnar Fjölnisson, framkvæmdastjóri tæknimála hjá Kaptio. „Við bjóðum upp á nýja upplifun og leiðir í bæði sölu og kaupum á ferðaþjónustu. Sífellt fleiri ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur, allt frá smáum til stórra fyrirtækja munu nota skýjaþjónustu eins og okkar við tilboðsgerð og bókanir, sem bæði auðveldar þeim vinnuna og hjálpar þeim eiga í betri samskiptum við viðskiptavini.“, sagði Ragnar.

Kaptio er tilnefnt í tveimur flokkum á Nordic Startups Awards í ár, annarsvegar í flokki „Best Exponential Startup“ og hinsvegar í flokki „CTO Hero of the Year“, hvar Ragnar Fjölnisson er tilnefndur. Þetta er í annað sinn sem Kaptio fær til liðs við sig fjárfesta, en snemma á síðasta ári tilkynnti félagið um nýja fjármögnun frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og Kaski ehf. fjárfestingafélagi, upp á 120 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×