Viðskipti innlent

Vefir Landsbankans lágu niðri

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Um bilun í vélbúnaði var að ræða.
Um bilun í vélbúnaði var að ræða. Vísir/Vilhelm
Vefir Landsbankans lágu niðri í um klukkutíma í dag. Eftir því sem fréttastofa kemst næst lágu vefirnir niðri frá því um klukkan þrjú í dag en komu upp aftur rétt eftir klukkan fjögur.

Ekki var hægt að komast inn á neina vefsíðu Landsbankans, þar með talið netbanka bankans og farsímavef hans.

Samkvæmt upplýsingum frá upplýsingafulltrúa Landsbankans var um bilun í vélbúnaði að ræða en greiðlega gekk að komast fyrir hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×