Lífið

Corden hengdur upp á skotskífu og Henry lét vaða: Ashton Kutcher þrumaði í punginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Henry kann alveg að sparka í bolta.
Henry kann alveg að sparka í bolta. vísir
Franska knattspyrnugoðið Thierry Henry var gestur í þætti James Corden, The Late Late Show á dögunum og tók þar þátt í skemmtilegum leik.

Leikurinn nefnist Target Practice og átti Henry að reyna hitta í gegnum göt á skotskífu. Hann var meira á því að reyna skjóta fótboltanum í Corden sjálfan.

Þegar leið á leikinn var komið fyrir merki á miðsvæði Bretans og fengust 100 stig fyrir að hitta í það. Henry náði því ekki en leikarinn Ashton Kutcher mætti þá á svæðið og kastaði boltanum beint í punginn á Corden.

Hér að neðan má sjá þetta fyndna atriði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×