Viðskipti innlent

37 prósent fjölgun gistinótta milli ára

ingvar haraldsson skrifar
Gistinóttum fjölgar milli ára.
Gistinóttum fjölgar milli ára.
Gistinætur á hótelum í febrúar voru 267.900 sem er 37% aukning miðað við febrúar 2015. Gistinætur erlendra gesta voru 89% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 41% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgar um 15%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Flestar gistinætur á hótelum í febrúar voru á höfuðborgarsvæðinu eða 200.400 sem er 38% aukning miðað við febrúar 2015. Um 75% allra gistinátta var á höfuðborgarsvæðinu. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 35.600. Erlendir gestir með flestar gistinætur í febrúar voru; Bretar með 101.600, Bandaríkjamenn með 47.900 og Þjóðverjar með 17.700 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili mars 2015 til febrúar 2016 voru gistinætur á hótelum 2.963.500 sem er 25% aukning miðað við sama tímabil árið áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×