Viðskipti innlent

ESA: Útgjöld vegna ríkisaðstoðar hækka á Íslandi en lækka í Noregi

Atli ísleifsson skrifar
Ísland jók útgjöld sín til ríkisaðstoðar árið 2014, einkum vegna aukinnar aðstoðar við rannsóknir, þróun, nýsköpun og menningarmál.
Ísland jók útgjöld sín til ríkisaðstoðar árið 2014, einkum vegna aukinnar aðstoðar við rannsóknir, þróun, nýsköpun og menningarmál.
Útgjöld Íslands og Liechtenstein vegna ríkisaðstoðar hækkuðu á árinu 2014 en lækkuðu lítillega í Noregi.

Þetta kemur fram í nýrri samanburðarskýrslu Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA sem birt var í dag.

Í skýrslunni segir að heildarútgjöld EFTA-ríkjanna hafi farið lækkandi líkt og undanfarin ár. „Stærsti hluti aðstoðar var til byggðaþróunar, en á eftir fylgdi aðstoð til umhverfisverndar og orkusparnaðar. Sáralítil aðstoð var bundin einstökum atvinnugreinum.“

Ríkisaðstoð er aðstoð sem hið opinbera veitir atvinnulífinu og er hún veitt með ýmsum hætti. Samanburðarskýrsla ESA er birt árlega og sýnir þróun ríkisaðstoðar í EFTA-ríkjunum sem og almennt á Evrópska efnahagssvæðinu.

Í skýrslunni segir að Ísland hafi aukið útgjöld sín til ríkisaðstoðar árið 2014, einkum vegna aukinnar aðstoðar við rannsóknir, þróun, nýsköpun og menningarmál. „Ísland samþykkti auk þess árið 2014 ríkisaðstoðarkerfi sem fellur undir almenna hópundanþágu. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu er fremur lágt á Íslandi samanborið við ríki Evrópusambandsins og er talsvert undir meðaltali ESB-ríkja.

Noregur dró úr aðstoð til rannsókna, þróunar og nýsköpunar sem og til byggðaþróunar árið 2014. Heildarútgjöld Noregs til ríkisaðstoðar lækkuðu þannig þrátt fyrir aukna aðstoð til umhverfisverndar og orkusparnaðar. Stærsti hluti ríkisaðstoðar í Noregi fór til byggðaþróunar og umhverfismála. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu Noregs var örlítið yfir meðaltali ESB-ríkja. Noregur notaði hópundanþáguna í vaxandi mæli og nam hlutfall slíkrar aðstoðar 29% af heildaraðstoð á árinu 2014.

Árið 2014 veitti Liechtenstein aðstoð til verkefna á sviði menningar og þjóðararfs auk þess að veita í fyrsta sinn aðstoð til orkusparnaðar. Því jukust útgjöld til ríkisaðstoðar í samanburði við fyrri ár. Hlutfall ríkisaðstoðar af landsframleiðslu var þó áfram lægst allra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×