Innlent

Mótmælendur mættir á Austurvöll

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Mótmælin fara friðsamlega fram.
Mótmælin fara friðsamlega fram. vísir/lillý valgerður
Nokkur fjöldi mótmælenda er samankominn fyrir framan Alþingishúsið, fjórða daginn í röð. Mótmælin fara friðsamlega fram en barið er á trommur og lætur fólk í sér heyra. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru um 1.500-2.000 mótmælendur á staðnum.

Hópurinn Jæja stendur fyrir mótmælunum en á Facebook-síðu hans er þess krafist að gengið verði til kosninga strax. „Mótmælin eru áminning til allra stjórnmálaflokka. Áminning um að virða almennt siðferði og lýðræðislegan vilja landsmanna,“ segir á síðunni.

Á mánudaginn síðasta mættu þúsundir á Austurvöll til þess að mótmæla ríkisstjórninni, en þau mótmæli munu hafa verið þau fjölmennustu í sögunni.

Þegar er búið að boða til næstu mótmæla, en þau verða á laugardaginn.

vísir/ernir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×