Viðskipti innlent

Björgólfur Jóhannsson endurkjörinn formaður SA

Sæunn Gísladóttir skrifar
Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, á fundinum í fyrra.
Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, á fundinum í fyrra. Vísir/Vilhelm
Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, var endurkjörinn formaður samtakanna á aðalfundi SA sem fór fram fyrr í dag í Húsi atvinnulífsins. Hann er kjörinn til eins árs. Björgólfur var kjörinn með 95 prósent greiddra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu sem fram fór meðal aðildarfyrirtækja SA og var þátttaka góð segir í tilkynningu.

Björgólfur ávarpar nú Ársfund atvinnulífsins í Hörpu og er hægt að fylgjast með útsedingu frá fundinum hér á Vísi.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×