Lífið

Spennandi tímar framundan

Starwalker gáfu út fyrstu plötu sína í síðustu viku sem hefur fengið góða dóma víða um heim. Sveitina skipa  Jean-Benoît Dunckel úr Air og Barði Jóhannsson.
Starwalker gáfu út fyrstu plötu sína í síðustu viku sem hefur fengið góða dóma víða um heim. Sveitina skipa Jean-Benoît Dunckel úr Air og Barði Jóhannsson. MYND/JEANEEN LUND
Það er annasamur tími framundan hjá tónlistarmanninum og ólíkindatólinu Barða Jóhannssyni. Í síðustu viku kom út fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Starwalker sem hann skipar ásamt Jean-Benoît Dunckel, öðrum meðlimi hljómsveitarinnar goðsagnarkenndu Air.

Myndbönd af nokkrum lögum plötunnar má m.a. sjá hér: Holidays, Le President og Loosers can win.

Í vikunni tókst hann líka á við algjörlega nýtt verkefni í lífi sínu; að vinna hefðbundið skrifstofustarf er hann hóf störf sem verkefnastjóri á markaðssviði Íslandshótela. Frekari tónsmíðar eru svo alltaf á dagskránni tengdar ýmsum ólíkum verkefnum og svo dýrmætar stundir með sjö ára dóttur sinni.

Fjölbreyttir dagar

Aðspurður um nýjan starfsvettvang segist hann hafa fundið fyrir nokkrum mánuðum þörf til að gera eitthvað nýtt og spennandi, þar sem hann gæti bæði notað að hluta reynslu sína en á sama tíma tekist á við ný og krefjandi viðfangsefni. „Ég hef síðustu 18 árin unnið óhefðbundna vinnu frá 11 á morgnana til 4 um nóttina. Þetta voru oft fjölbreyttir dagar enda sautján tíma vinnudagar. Stundum vann ég sem listamaður, stundum sem útgefandi en síðustu ár hefur töluverður tími farið í umsýslu og markaðsmál auk tónlistarinnar sjálfrar. Ég hef verið meira og minna að kynna tónlist og Ísland hálfa ævina, verið í mörgum stærstu blöðum heims og unnið með markaðsfyrirtækjum víða. Mig langaði einfaldlega að opna sjóndeildarhringinn og fá víðtækari reynslu.“

Fengið góða dóma

Fyrsta breiðskífa Starwalker kom út í síðustu viku og hefur nú þegar fengið góða dóma víða um heim. Nokkur ár eru síðan samstarf þeirra JB (eins og Jean-Benoît Dunckel er yfirleitt kallaður) hófst sem í fyrstu átti bara að vera eitt lag en endaði þremur árum síðar með breiðskífu. „Það eru reyndar mörg ár síðan við hittumst fyrst og tókum spjall saman. Það var á tónlistarhátíð sem við spiluðum báðir á, ég með Bang Gang og hann með Air. Síðar spilaði ég á undan þeim á tónleikum í Salle Playel í París. Eftir báða tónleikana áttum við spjall og gerðum grín.“



Nokkru síðar stakk sameiginleg vinkona þeirra upp á því að þeir myndum hittast í kaffi. „Við ákváðum að prófa að semja saman eitt lag og sjá hvað kæmi út úr því. Fyrsta lagið sem við töldum í var Bad Weather og við gáfum það út á smáskífu í október 2013. Lagið endaði líka á nýju plötunni þannig að segja má að stóra platan sýni Starwalker frá fæðingu til dagsins í dag.“

Einu tónleikar Starwalker hingað til voru á Sónar Reykjavík árið 2014.MYND/ANTON ALBERT EGGERTSSON, SÓNAR REYKJAVÍK.
Líður best í hljóðveri

Þrátt fyrir prýðilega dóma hafa þeir félagar ekki ákveðið neina tónleika á næstunni. Raunar segir Barði þá ekki vera að leita eftir því enda kunni þeir best við sig í hljóðveri. „Einu tónleikarnir sem Starwalker hefur haldið voru á Sonar hátíðinni á Íslandi árið 2014. Það var frábærir tónleikar og við vorum gríðarlega ánægðir með útkomuna. Ef okkur verður boðið að spila á stórum tónleikum munum við líklega gera það en við höfum ekki áhuga á að spila á smærri stöðum.“

Meðlimir Starwalker eru auk þess nokkuð uppteknir næstu mánuði. JB er á leið í stóra tónleikaferð með Air í sumar og Barði mun m.a. spila með Bang Gang á Secret Solstice hátíðinni sem fer fram í Reykjavík í júní. „Svo á að flytja tónlist mína við sænsku kvikmyndina Häxan með sinfóníuhljómsveit á Transylvania Filmfestival í Rúmeníu en myndin er frá árinu 1922.“

Lítil tónlistarumfjöllun

Það er ekki á hverjum degi sem íslenskur listamaður starfar með jafn þekktum tónlistarmanni og JB. Air hefur selt milljónir platna og nýtur mikilla vinsælda og virðingar víða um heim. Þrátt fyrir það hefur farið furðu hljótt um samstarf þeirra í fjölmiðlum hérlendis en Barði heldur sinni alþekktu ró. „Umfjöllun um tónlist er almennt of lítil í fjölmiðlum hér heima. Sem er skrýtið því ég held að 99% landsmanna hlusti á tónlist beint eða óbeint stóran hluta dagsins. Það er samt ekki mitt að segja öðrum hvað þeir eiga að skrifa um, frekar en þeir ættu að segja mér hvernig ég ætti að semja tónlist.“

Ný plata og nýtt starf. Verkefnin eru næg hjá Barða Jóhannssyni.MYND/TAKI BIBELAS
Margt í pípunum

Það er sjaldnast lognmolla kringum Barða enda fjölmörg ólík verkefni sem liggja eftir hann. „Síðustu árin hef ég náð að gera nær allt sem mig langaði til. Gefið út undir merkjum Bang Gang, samið óperu og klassíska tónlist, samið tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarpsþætti og gert bæði útvarps- og sjónvarpsþætti. Það að auki hef unnið með mörgum þeirra listamanna sem mig hefur langað að vinna með, listamenn á borð við JB úr Air, M83, Keren Ann, Helen Marnie úr Ladytron og fleirum.“

Hann segist einnig vera vel á veg kominn með verk sem blandar saman ambient, raftónlist og klassík sem kemur út á næstunni. „Ég er búinn að koma útgáfumálum mínum þannig fyrir að það er einfalt fyrir mig að gefa út nýtt efni þegar það verður til. Ég get alveg lofað því að nýjar plötur með Bang Gang og Starwalker munu koma en hvenær það verður, er vandi að spá.“

Vill vera á Íslandi

Ólíkt því sem margir halda er Barði búsettur hér á landi stærstan hluta ársins þrátt fyrir að starfa með fjölda erlendra listamanna. „Það hefði verið best fyrir ferilinn að búa erlendis og stækka þannig kökuna. Tónlistin mín hefur skilað Íslendingum beinum og óbeinum gjaldeyri í yfir 18 ár. Ég fæ hins vegar alltaf mikla heimþrá eftir 1-2 mánaða dvöl erlendis. Svo á ég dóttur hér heima þannig að það er ekki í boði að flytja út eða ferðast í lengri tíma því ég myndi aldrei vilja missa af þeim dýrmæta tíma sem ég fæ með henni.“

Auk þess elskar hann íslenska náttúru. „Mér finnst gaman að hafa bjart á sumrin og dimmt yfir veturinn. Veðrið er fjölbreytilegt, Íslendingar eru hressandi og 20% af þeim eru jafnvel með góðan húmor. Mér finnst gaman að fá útlendinga í heimsókn og líka að fara í stuttar ferðir til útlanda. Mér finnst Evrópa fín, svo er frábært að spila í Kína, fólkið þar er frábært og líka í Bandaríkjunum. Allt hefur sinn sjarma.“

Hægt er að hlusta á nýju plötu Starwalker á Spotify og Soundcloud. Nánari upplýsingar og myndbönd má m.a. finna á www.starwalkermusic.com, á facebook, á Twitter og YouTube rásinni StarwalkerVEVO.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×