Viðskipti innlent

Vöruviðskipti voru óhagstæð um 8,9 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Verðmæti vöruútflutnings nam 44,5 milljörðum króna.
Verðmæti vöruútflutnings nam 44,5 milljörðum króna. Vísir/GVA
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir mars 2016 nam fob verðmæti vöruútflutnings 44,5 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 53,4 milljörðum króna. Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8,9 milljarða króna.

Athygli skal vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×