Formúla 1

Nico Rosberg vann í Kína

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var einmanna í forystunni í dag.
Nico Rosberg var einmanna í forystunni í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes vann sína sjöttu keppni í röð með því að vinna í Kína. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Daniil Kvyat á Red Bull varð þriðji.

Rosberg leiðir nú með 36 stigum eftir að hafa náð í 25 stig í dag. Rosberg var aleinn nánast alla keppnina, hann náði í hundraðasta verðlaunapall Mercedes í Formúlu 1. Lewis Hamilton sem ræsti aftastur endaði í sjöunda sæti. Keppnin var gríðarlega viðburðarík og spennandi.

Vettel og Kimi Raikkonen lentu í samstuði í fyrstu beygju. Hamilton varð einnig fyrir skaða í fyrstu beygju. Hamilton var um tíma með framvænginn undir bílnum. Raikkonen og Hamilton komu inn á þjónustusvæðið undir lok fyrsta hrings fyrir nýjan framvæng.

Daniel Ricciardo stal fyrsta sætinu af Rosberg á fyrsta hring. Rosberg náði forystunni aftur og vinstra afturdekkið flettist af felgunni í sömu andrá á þriðja hring. Ricciardo kom því inn á þjónustusvæðið fyrir ný dekk.

Öryggisbíllinn kom út á fimmta hring. Það þurfti að hreinsa koltrefjabúta af brautinni eftir klaufalegan fyrsta hring. Ökumenn nýttu sér öryggisbílinn til að taka þjónustuhlé, Vettel var þar á meðal og fékk nýjan framvæng.

Röðin á eftir öryggisbílnum var mjög óhefðbundin, Pascal Wehrlein á Manor var til að mynda fjórði við endurræsinguna, Raikkonen 19. og Rio Haryanto á Manor áttundi þegar endurræsingin átti sér stað við lok áttunda hringjar.

Ræsingin og fyrstu beygjurnar sköpuðu fjöruga keppni.Vísir/Getty
Atburðarásin eftir endurræsinguna var hröð og fjörleg. Vettel lent í samstuð við Valtteri Bottas á Williams og braut aftur hluta af framvængnum en gat haldið áfram.

Rosberg tók þjónustuhlé á hring 21. hann hélt forystunni. Hamilton tók sitt fjórða þjónustuhlé á hring 22 og kom inn á þjónustusvæðið í þriðja sæti og fór út í 14. sæti.

Hulkenberg fékk fimm sekúndna refsingu fyrir að aka óþarflega hægt á leiðinni inn á þjónustusvæðið.

Hamilton tók þjónustuhlé á hring 31 og fékk millihörð dekk undir og ætlaði að reyna að keyra til loka. Sem hann gerði en gripið var lítið sem ekkert síðustu 10 hringina eða svo.

Á hring 32 var Vettel kominn í DRS færi við Kvyat í öðru sæti. Þeir komu svo inn á þjónustusvæðið á sama tíma á hring 35 og komu út og veittu Raikkonen félagsskap í smástund á brautinni. Vettel tók þriðja sætið af Kyat í upphafi 37 hringjar. Ricciardo var þá annar og tók svo þjónustuhlé og Vettel þá orðinn annar á eftir Rosberg sem sigldi auðan sjó fremstur.

Baráttan um fjórða sæti var afar spennandi, Felipe Massa, Hamilton og Ricciardo börðust harkalega. Á hring 43 tók Ricciardo fimmta sætið af Hamilton. Á næsta hring hélt Ricciardo áfram og tók fram úr Massa. Raikkonen tók svo fram úr Bottas á Hring 45 og hóf að elta Hamilton.

Raikkonen tók svo fram úr Hamilton á 47. hring og stal sjötta sætinu af heimsmeistaranum. Raikkonen stal svo fimmta sætinu af Massa á næsta hring. Hamilton náði að halda sjöunda sætinu.

Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Horner: Ég veit ekki hvaðan þetta kom

Nico Rosberg á Mercedes náði sínum fyrsta ráspól í ár í Kína í morgun. Tímatakan var full af atvikum. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Button notar sína aðra vél í Kína

Jenson Button ökumaður Mclaren-Honda liðsins mun nota vél númer tvö í Formúlu 1 kappakstrinum í Kína um helgina. Honda vélin í Mclaren bílnum bilaði í Bahrein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×