Ráspóllinn í dag var 23. ráspóll Nico Rosberg á ferlinum. Mercedes verður á andstæðum endum þvögunnar í ræsingunni á morgun. Rosberg fremstur en Lewis Hamilton aftastur vegna bilunar sem kom upp í fyrstu lotu tímatökunnar.
„Ég er mjög ánægður með bílinn í dag. Það er auðvitað ekki gott að Lewis [Hamilton] datt út með bilun. ,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna.
„Við vorum búin að eiga erfitt í tímatökunni og lykilatriðið var að fara varlega að dekkinu í upphafi tímatökuhringsins. Liðið gerði vel í að læra af aðstæðum í dag,“ sagði Daniel Ricciardo eftir tímatökuna þar sem hann kom á óvart á Red Bull bílnum.
Meira að segja Christian Horner, keppnisstjóri Red Bull var hissa á getu bílsins og ökumannsins. „Ég veit ekki hvaðan þetta kom,“ sagði Horner.
„Við hefðum getað náð ráspól í dag. Við munum reyna að gera okkar besta á morgun. Ég gerði sömu mistök í hringnum á undan og þau eru dýr,“ sagði Kimi Raikkonen eftir tímatökuna og vísaði til mistaka sem hann gerði í næst síðustu beygjunni, þar sem hann bremsaði of seint og fór of langt inn í beygjuna og tapaði hraða.

„Ég taldi mig hafa getuna og var viss um að mér tækist að negla hringinn í einni tilraun það tókst því miður ekki og ég gerði mistök. Við getum átt mjög góðan dag og stefnum fram á veginn á morgun,“ sagði Vettel.
„Baráttan hér verður hörð. Við enduðum þar sem við bjuggumst við að vera í dag. Við munum halda áfram að reyna að pressa á þá á undan okkur. Við erum akkurat núna á eftir Mercedes og Ferrari,“ sagði Valtteri Bottas sem ræsir fimmti á morgun.
„Lewis á eftir að vera með flugeldasýningu á morgun hann mun gefa allt í keppnina á morgun. Nico nær vonandi góðri ræsingu og á svo vonandi viðburðalausa keppni,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Merceds.
„Þetta var ágætis tímataka. Aðstæður voru að breytast hratt. Við litum vel út. Við vitum ekki alveg hvernig keppnin verður, við keyrum bara af stað og sjáum svo til,“ sagði Daniil Kvyat sem ræsir sjötti á morgun.
„Við höfðum tækifæri til að komast í þriðju lotu. Tækifærið hvarf svo með rauðu flöggunum. Það var leiðinlegt en við getum barist á morgun. Markmiðið er að ná í stig og bara sem flest,“ sagði Fernando Alonso sem ræsir 12. á morgun.