Viðskipti innlent

Vill að lífeyrissjóðir stofni kjararáð

Ingvar Haraldsson skrifar
Bolli Héðinsson, vill að lífeyrissjóðir nýti sér stöðu sína á hlutabréfamarkaði til að koma í veg fyrir of há laun stjórnenda og stuðla að siðlegum fyrirtækjarekstri.
Bolli Héðinsson, vill að lífeyrissjóðir nýti sér stöðu sína á hlutabréfamarkaði til að koma í veg fyrir of há laun stjórnenda og stuðla að siðlegum fyrirtækjarekstri. fréttablaðið/pjetur
Bolli Héðinsson, hagfræðingur og formaður Samtaka Sparifjáreigenda, vill að lífeyrissjóðirnir komi á fót kjarráði til að sporna gegn of háum launagreiðslum og kaupaukum til stjórnenda. „Því skyldu lífeyrissjóðirnir ekki notfæra sér það afl sem þeira hafa sameiginlega og reyna koma skikki á launakjör stjórnenda þeirra fyrirtækja sem þeir eiga í, í stað þess að búa við stöðugar hótanir stjórnenda um að þeir fari eitthvað annað, fái þeir ekki þau laun og kaupauka sem að þeir krefjist?,“ spyr Bolli.

Kjararráðið yrði sjálfstæðri nefnd sem úrskurði um laun stjórnenda fyrirtækja í eigu lífeyrissjóða. „Kjararáð lífeyrissjóðanna myndi setja saman launatöflum fyrir stjórnendur og skipa þeim, hvort sem er í bönkum eða öðrum fyrirtækjum lífeyrissjóðanna, viðeigandi stað í launatöflum sem kjarráðið setur.“

Bolli segist ekki hafa áhyggjur af því að íslenskir stjórnendur myndu leita úr landi. „Ég veit að það er enginn eftirspurn eftir íslenskum stjórnendum í útlöndum, nema manni og manni,“ segir hann.

Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríksins, stærsta lífeyrissjóðs landsins, segir hugmyndina nýja og skoðunarverða. „Hún gegnur hins vegar út á víðtækara samstarf milli lífeyrissjóða en er til staðar því hver og einn lífeyrissjóður kemur fram sem sjálfstæður fjárfestir. Ég hef ákveðnar efasemdir um að markaðurinn og samkeppnisyfirvöld myndu heimila þetta víðtæka samstarf lífeyrissjóðanna,“ segir Haukur.

Haukur segir þá hluthafastefnu sem LSR hafi samþykkt ganga út frá því að launakjör stjórnenda þeirra fyrirtækja sem lífeyrissjóðurinn eigi hlut í séu hófleg en í takti við það sem tíðkist hjá sambærilegum fyrirtækjum.

Bolli telur hins vegar ekki að samkeppnisyfirvöld muni setja sig upp á móti fyrirkomulaginu. Samtök atvinnulífsins reki til að mynda samræmda kjarastefnu.

Þá segir hann kaupauka geta verið góðragjaldaverðir í fyrirtækjum sem sýsla væru með áþreifanlega hluti, en mjög samfærandi rök hafi verið færð fyrir því að kaupaukar í fjármálafyrirtækjum skili litlu sem engu.

Bolli segir að lífeyrissjóðirnir ættu að mynda sér sameiginlega eigandastefnu, um í hvernig fyrirtækjum, þeir fjárfesti. „Til dæmis gæti það verið regla hér eftir að þeir fjárfesti ekki í fjármálafyrirtækjum sem veiti ráðgjöf um að setja upp fyrirtæki á Tortóla eða öðrum skattaskjólum,“ segir Bolli. Auk þess ætti að vera ákveðin siðferðisviðmið uppi um þá stjórnendur sem séu í forsvari fyrir fyrirtæki í eigu lífeyrissjóða.

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiblaði Fréttablaðsins þann 13. apríl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×