Viðskipti innlent

Viðskiptastjóra vikið úr starfi hjá Arion

Sveinn Arnarsson skrifar
Viðskiptastjóri Arion banki á Akureyri er jafnvel talinn hafa  valdi bankanum fjárhagstjóni.
Viðskiptastjóri Arion banki á Akureyri er jafnvel talinn hafa valdi bankanum fjárhagstjóni. vísir/sveinn
Viðskiptastjóra Arion banka á Akureyri var gert að hætta störfum strax fyrr í þessum mánuði vegna gruns um saknæmt athæfi hans í störfum hjá bankanum. Ekki er loku fyrir það skotið að málið rati til lögreglu að lokinni innanhússrannsókn í bankanum.

Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, vill lítið tjá sig um málið en staðfestir þó að starfsmaður bankans á Akureyri sé talinn hafa gerst brotlegur við reglur bankans og hafi verið látinn fara um leið og upp komst um málið.

„Ég get staðfest það að málið er til skoðunar innan bankans og varðar brot á reglum sem geta valdið bankanum fjárhagstjóni, að öðru leyti get ég ekki rætt um málið á þessari stundu,“ segir Haraldur Guðni.

Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins átti viðskiptastjórinn sjálfur í ýmsum viðskiptum og nýtti sér stöðu sína að því leyti. Þannig gat skapast hætta á tjóni fyrir bankann því ekki var tryggt að hagsmunir bankans væru hafðir í öndvegi þegar hans eigin viðskipti voru undir.

Málið er litið alvarlegum augum innan bankans en það hefur ekki verið tilkynnt lögreglu og er í skoðun innan bankans eins og fyrr segir. Komi hins vegar í ljós að um saknæmt athæfi hafi verið að ræða er líklegt að málið fari til lögregluyfirvalda til frekari úrvinnslu.

Viðskiptastjórinn fyrrverandi vill ekki tjá um málið við Fréttablaðið en áréttar að hann telji sig engar reglur hafa brotið. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. apríl






Fleiri fréttir

Sjá meira


×