Viðskipti innlent

Jákvæð afkoma hjá Kópavogsbæ 2015

Sæunn Gísladóttir skrifar
Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári eða um 3,1 prósent.
Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári eða um 3,1 prósent. Vísir/GVA
Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar nam 161 milljón króna árið 2015. Þá lækkaði skuldahlutfall bæjarins í 162,5 prósent á árinu, sem er ívið meiri lækkun en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Niðurstaðan er góð í ljósi mikilla launahækkana og stóraukins framlags til lífeyrisskuldbindinga í kjölfar kjarasamninga síðasta árs. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 sem verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þriðjudaginn 26. apríl.

Fram kemur í ársreikningi að gert var ráð fyrir 398 milljón króna rekstrarafgangi samstæðunnar í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, en niðurstaðan varð 161 milljón króna afgangur. Þá varð rekstrarniðurstaða A-hluta neikvæð um 222 milljónir en  en gert hafði verið ráð fyrir 147 milljón króna afgangi.

Laun og launatengd gjöld námu í heild alls 12.868 milljónum króna. Það er 5,5 prósent yfir því sem áætlað var. Framlag til lífeyrisskuldbindinga sveitarfélagsins voru tæplega 470 milljónir króna, sem er um 288 milljónum króna umfram áætlun.

Heildarfjöldi starfsmanna hjá sveitarfélaginu var 2.933 í árslok 2015 en meðal stöðugildi á árinu voru 2034.

Skuldahlutfall A-hluta er nú tæp 142 prósent en það komst undir 150 prósent í fyrra. Samkvæmt aðlögunaráætlun verður skuldahlufall samstæðu komið undir 150 prósent viðmið árið 2018. Skuldahlutfall samstæðu lækkaði í 162,5 prósent úr 175,2 prósent en það var 242 prósent þegar hæst var árið 2010.

Tekjur sveitarfélagsins námu rúmlega 24,6 milljörðum en gert hafði verið ráð fyrir tæplega 24,2 milljörðum í tekjum fyrir A og B-hluta.  Eigið fé nam í árslok 2015 tæplega 16 milljörðum króna.

Íbúar Kópavogs voru þann 1. desember 34.105 og fjölgaði um 1.010 frá fyrra ári eða um 3,1 prósent.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×