Viðskipti innlent

Akraneskaupstaður skilar rekstrarafgangi

Sæunn Gísladóttir skrifar
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 200,3 milljónir króna.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 200,3 milljónir króna. Vísir/GVA
Afkoma Akraneskaupstaðar árið 2015 er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, en rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 200,3 milljónir króna. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015, ásamt viðaukum gerði ráð fyrir 141,9 milljón króna afgangi í A-hluta. Skuldahlutfall A-hluta fer lækkandi og er 104% en var 116% árið 2014.

Á árinu voru langtímalán greidd niður um 263,6 milljónir króna. Veltufé frá rekstri A-hluta er 683,4 milljónir króna sem er um 13,4% af rekstrartekjum. Eigið fé A-hluta er um 6,52 milljarðar króna og er eiginfjárhlutfall 55%. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A og B hluta er einnig jákvæð og er rekstrarafgangur, þegar tekið hefur verið tillit til tapreksturs á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða og Gámu, 75,2 milljónir króna. Helsta ástæða tapreksturs á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða er vegna hárra lífeyrisskuldbindinga en heimilið er með langhæstu skuldbindinguna af hjúkrunarheimilum á Íslandi. Skuldahlutfall samstæðunnar er nú 116%.

Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra höfðu kjarasamningshækkanir mikil áhrif á reksturinn en á móti komu hærri útsvarstekjur, aukin framlög úr Jöfnunarsjóði og auknar tekjur vegna sölu lóða. Aðhalds hefur verið gætt á öllum sviðum rekstrarins og liðurinn sameiginleg útgjöld sem telur meðal annars rekstur bæjarskrifstofunnar hefur farið hlutfallslega lækkandi á undanförnum árum og er nú 6,4% af skatttekjum bæjarfélagsins. Útgjöld vegna skólamála hafa hinsvegar hækkað úr 46,8% í 49% af skatttekjum og munar þar mestu um nýgerðan kjarasamning kennara og leikskólakennara.  Útgjöld vegna velferðarþjónustu hafa hækkað úr 18,4% af skatttekjum í 19%, vegna aukinnar þjónustu í málefnum fatlaðra en fjárhagsaðstoð hefur lækkað um 25% á árinu vegna betra ástands á vinnumarkaði og markvissrar vinnu við að virkja einstaklinga til atvinnuþátttöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×