Íslenski boltinn

Huginn vann frábæran sigur á Fjarðarbyggð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Úr leik Fjarðarbyggðar.
Úr leik Fjarðarbyggðar.
Huginn vann góðan útisigur, 2-1, á Fjarðarbyggð í Inkasso-deildinni í knattspyrnu í dag.

Jose Embalo skoraði fyrsta mark leiksins rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins og var staðan því 1-0 fyrir Fjarðarbyggð í hálfleik.

Huginn mætti sterkari til leiks í þeim síðari og náði liðið að skora tvö mörk. Þau komu frá Stefáni Ómari Magnússyni og Jaime Guijarro. Flott byrjun hjá Huginn í 1. deildinni en þetta er í fyrsta skipti sem liðið leikur í næst efstu deild. 

Stefán er aðeins 16 ára og því frábær árangur hjá honum að skora mark í 1. deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×