Einar Andri: Stórkostlegur leikur Ingvi Þór Sæmundsson í Schenker-höllinni skrifar 14. maí 2016 19:44 Einar Andri og lærisveinar hans eru einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. vísir/anton „
Þessi fer á topp þrjú. Við vorum í svakalegum leikjum í úrslitakeppninni í fyrra en þetta var stórkostlegur leikur tveggja frábærra liða,“ sagði alsæll Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir sigurinn ótrúlega á Haukum í dag. Leikurinn var mögnuð skemmtun og ótrúlega sveiflukenndur. En hvað skilaði sigrinum að lokum að mati Einars Andra? „Það eru frasar sem maður grípur í, við sýndum hjarta og hungur sem skilaði þessu. Leikurinn var eiginlega tapaður undir lok venjulegs leiktíma en menn hafa farið áður í gegnum þetta, að ná upp forystu, og við trúðum að við gætum gert það,“ sagði þjálfarinn. Afturelding var í miklum vandræðum með Adam Hauk Baumruk sem skoraði 15 mörk í leiknum. „Við þurfum að fara vel yfir þetta. Hann fór illa með okkur og var frábær. Við viljum halda okkar áherslum í vörninni og breyttum aðeins í leiknum en það gekk ekki vel,“ sagði Einar Andri sem var mjög ánægður með sóknarleik Mosfellinga í dag. „Hann var stórkostlegur, bæði á móti 6-0 vörn og þegar þeir tóku Mikk [Pinnonen] úr umferð.“ Afturelding getur tryggt Íslandsmeistaratitilinn í annað sinn í sögu félagsins með sigri í fjórða leiknum gegn Haukum á mánudaginn. Þrátt fyrir tvær framlengingar í dag segir Einar Andri að hans menn eigi nóg eftir fyrir fjórða leikinn. „Við erum búnir að æfa frábærlega í allan vetur og alveg frá því við töpuðum þriðja leiknum á móti Haukum í úrslitunum í fyrra. Við eigum nóg af mönnum,“ sagði Einar Andri að endingu.
Olís-deild karla Mest lesið Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Sport Fékk rautt spjald fyrir að pissa Fótbolti Vill eignast lið í hverri heimsálfu Fótbolti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Sport Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Enski boltinn Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Körfubolti Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Bronshetja Svía í bann fyrir mótmælin Sport Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Enski boltinn Fengu að heyra það frá Ancelotti Fótbolti Fleiri fréttir Dagur Árni í liði mótsins á EM Ungu strákarnir okkar grátlega nálægt bronsi Stelpurnar unnu Gíneu en spila um Forsetabikarinn Gull, silfur og brúðkaup Stórt tap í undanúrslitum gegn Dönum Íslendingar í undanúrslit á EM Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni Tekur fimmtánda tímabilið með FH Stór skellur í fyrsta leik á HM í Kína Tap gegn Spáni en Ísland gæti enn spilað um verðlaun „Ætti að læsa þann inni sem fann upp á þessu kerfi“ Óttast um framtíð handboltans á Ólympíuleikunum Íslenski Daninn náði slemmunni „Nú færðu loksins tíma til að gera það sem þú hefur mest gaman af“ Rústuðu Þjóðverjum í úrslitaleiknum Enn og aftur unnu Spánverjar brons Tíundu gullverðlaun Þóris sem þjálfara Noregs Handboltaparið bæði í úrslitum á Ólympíuleikunum Fyrstu verðlaun Dana í tuttugu ár Hetjulegur endasprettur dugði Slóvenum skammt Alfreð stýrði Þýskalandi í úrslitaleik Ólympíuleikanna Hver er þessi þýski Petersson sem skaut Frakkana í kaf? Þórir með norska liðið í úrslitaleik Ólympíuleikanna Frakkar í úrslit eftir dramatík Norðmenn úr leik og Slóvenar í undanúrslit í fyrsta sinn Heimsmeistararnir áfram í undanúrslit eftir spennutrylli gegn Svíum Þjóðverjar í undanúrslit eftir ótrúlega dramatík Spánverjar í undanúrslit eftir mikla spennu og framlengingu Norsku stelpunar hans Þóris flugu í undanúrslit Frakkar og Danir í undanúrslit Sjá meira