Viðskipti innlent

Hagnaður Norðuráls dregst saman

Sæunn Gísladóttir skrifar
Álver Norðuráls á Grundartanga hagnaðist um 45,8 milljónir dollara, jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári.
Álver Norðuráls á Grundartanga hagnaðist um 45,8 milljónir dollara, jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Vísir/Vilhelm
Álver Norðuráls á Grundartanga hagnaðist um 45,8 milljónir dollara, jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Hagnaður fyrirtækisins var tæplega helmingi lægri en árið áður þegar hann nam 82,7 milljónum dollara, 10,2 milljörðum íslenskra króna.

Eignir fyrirtækisins námu í árslok 2015 683 milljónum dollara, 84 milljörðum íslenskra króna. Að meðaltali voru stöðugildi 567 á árinu.

Lagt er til að greiddur verði út arður að upphæð 40 milljóna dollara, jafnvirði 4,9 milljarðar íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×