Þetta gerðist tiltölulega snemma í kosningabaráttunni og leiddi til þess að Trump stærði sig opinberlega af stærð getnaðarlims síns.
„Ég vil að börnin mín séu stolt af mér og ég held að þetta hafi ekki endurspeglað trú mína, né hver ég er,“ sagði Rubio í viðtali hjá CNN. Samkvæmt Huffington Post bað Rubio Trump einnig afsökunar í eigin persónu. Það gerði hann á meðan kappræðurnar stóðu enn yfir.
Rubio, sem hefur dregið sig úr kapphlaupinu um tilnefningu Repúblikanaflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna, segist ekki hafa viljað græða á afsökunarbeiðninni og því hafi hann ekki sagt frá henni.