Viðskipti innlent

Gengið frá kaupum vegna kvikmyndavers Baltasars

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Dagur og Baltasar skrifa undir.
Dagur og Baltasar skrifa undir. Mynd/Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Baltasar Kormákur undirrituðu í dag samning um kaup kvikmyndafyrirtækisins RVK Studios á fasteignum í Gufunesi undir kvikmyndaver.

Borgarráð samþykkti samhljóða á fundi sínum í síðustu viku samninga við RVK- Studios um kaup á eignum fyrirtækisins á fasteignum í Gufunesi undir kvikmyndaver í byggingunum. Byggingarnar tilheyrðu áður Áburðarverksmiðjunni en hafa verið leigðar Íslenska gámafélaginu undanfarin ár.

Um er að ræða fjórar eignir, sem samtals eru tæpir 8.400 fermetrar: Hráefnageymsla 4.161 fermetrar, áfast verksmiðjuhús 2065 fermetrar, birgðageymsla 1139 fermetrar og skeljasandsþró 486 fermetrar. Lóðin sem um ræðir og byggingar eru afmörkuð sem hluti A1 á meðfylgjandi loftmynd.

Í tengslum við kaupin fær félagið vilyrði í þrjú ár fyrir um 19.200 fermetra svæði austan bygginganna. Greiðir félagið 1000 krónur á ári fyrir hvern fermetra fyrir vilyrðið þau þrjú ár sem vilyrðið stendur. Nýti félagið sér vilyrðið og fái lóðum úthlutað gengur greiðslan upp í lóðaverð. Greitt verður markaðsverð fyrir lóðirnar þegar þar að kemur.

Kvikmyndaverið verður hluti af framtíðarmynd Gufuness og ein af forsendum í skipulagssamkeppni sem þegar hefur verið efnt til og lýkur í september. Skipulagsamkeppnin tekur til mun stærra svæðis en eingöngu svæðis gömlu Áburðarverksmiðjunnar.

Hér að neðan má sjá svæðið sem um ræðir.


Tengdar fréttir

Óháðir fasteignasalar mátu virði eignanna á Gufunesi

Borgarstjóri Reykjavíkur segir óháða fasteignasala hafa verið fengna til að meta virði fasteigna á Gufunesi sem borgin hefur samþykkt að selja RVK-Studios. Hann segir gífurlega mikil tækifæri felast í uppbyggingu í þessum starfsgeira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×