Allri umfjöllun um Ástralíu eytt úr ítarlegri skýrslu um loftslagsbreytingar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. maí 2016 00:11 Loftslagsbreytingar hafa haft mikil neikvæð áhrif á kóralrifið mikla í Ástralíu. vísir/getty
Allri umfjöllun um Ástralíu var eytt úr lokaútgáfu viðamikillar skýrslu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar í kjölfar þess að ástralska ríkisstjórnin greip inn í þar sem hún taldi að upplýsingar sem fram komu í skýrslunni geta skaðað ferðamennksu í landinu. Um er að ræða skýrslu sem Unesco, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, vann meðal annars með samtökum vísindamanna en skýrslan kemur út í dag. Í drögum að skýrslunni var fjallað ítarlega um áhrif loftslagsbreytinga kóralrifið mikla undan ströndum Ástralíu auk þess sem fjallað var um skóga Tasmaníu og Kakadú-þjóðgarðinn. Allir þessir staðir eru á heimsminjaskrá Unesco. Þegar ástralska umhverfisráðuneytið sá drögin brást það illa við og krafðist þess að allri umfjöllun um landið yrði eytt úr skýrslunni. Will Steffen einn af skýrsluhöfundunum segir þessi viðbrögð minna á Sovétríkin. Engri annarri umfjöllun um nokkurt annað landsvæði var eytt úr skýrslunni. Talsmaður ástralska umhverfisráðuneytisins sagði í samtali við breska blaðið Guardian að nýlega hefði það sýnt sig að neikvæð umfjöllun um heimsminjar landsins hefði haft áhrif á ferðamennsku í landinu. Það er óumdeilt að loftslagsbreytingar hafa haft mikil neikvæð áhrif á kóralrifið. Þannig hafa óvenju mikil hlýindi gert það að verkum að rifin hafa misst mikið af lit. Þá telja vísindamenn að í norðurhluta rifsins hafi að minnsta kosti helmingur kórallanna dáið.
Mest lesið Íbúí í Holtunum smitaðist af hermannaveiki Innlent Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Erlent Friðhelgin stórauki vald forsetans Erlent Íslandsbankahúsið rústir einar Innlent Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Innlent Umræðan verði að vera málefnaleg Innlent Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Sjá meira