Asprilla: James er með sömu stæla og Ronaldo Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2016 08:03 James og Ronaldo. Asprilla er ekki hrifinn af vinskap þeirra. vísir/getty
Faustino Asprilla, fyrrverandi landsliðsmaður Kólumbíu og leikmaður Newcastle United og fleiri liða, segir að Cristiano Ronaldo hafi slæm áhrif á James Rodríguez, samherja sinn hjá Real Madrid og fyrirliða kólumbíska landsliðsins. „James er vinur minn og mér þykir mjög vænt um hann,“ sagði Asprilla um landa sinn eftir 3-0 tap Kólumbíu fyrir Argentínu í undankeppni HM 2018 fyrr í vikunni.Asprilla lék með Newcastle á árunum 1996-98.vísir/getty„Ég sé að vinskapur hans og Cristianos Ronaldo hefur slæm áhrif á hann. Núna er hann með sama látbragð og Ronaldo þegar hann fær ekki boltann. Ronaldo tjáir óánægju sína í hvert skipti sem hann fær ekki boltann og James er byrjaður að apa það eftir honum.“ Asprilla segir að James verði að hætta þessum stælum og einbeita sér að því að spila fyrir liðið og hjálpa yngri leikmönnunum í kólumbíska liðinu. James hefur átt erfitt uppdráttar hjá Real Madrid eftir að Zinedine Zidane tók við þjálfun liðsins. Kólumbíumaðurinn á ekki fast sæti í liði Evrópumeistaranna og hefur aðeins byrjað tvo leiki í spænsku úrvalsdeildinni í vetur. Real Madrid situr á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 27 stig eftir 11 umferðir. Liðið sækir granna sína í Atlético Madrid heim á laugardaginn.
HM 2018 í Rússlandi Spænski boltinn Tengdar fréttir Asprilla kennir hestinum sínum að spila fótbolta í risaeðlubúningi | Myndband Kólumbíumaðurinn Faustino Asprilla verður seint sakaður um að vera eins og fólk er flest. 19. febrúar 2016 23:30 Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Sjá meira
Asprilla kennir hestinum sínum að spila fótbolta í risaeðlubúningi | Myndband Kólumbíumaðurinn Faustino Asprilla verður seint sakaður um að vera eins og fólk er flest. 19. febrúar 2016 23:30