Viðskipti innlent

320 þúsund flugu með Icelandair í síðasta mánuði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Í maí flutti Icelandair 320 þúsund farþega í millilandaflugi.
Í maí flutti Icelandair 320 þúsund farþega í millilandaflugi. Vísir/Vilhelm
Í maí flutti Icelandair 320 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 20 prósent fleiri en í maí á síðasta ári.

Þetta kemur fram í nýjum flutningatölum frá Icelandic Group sem á og rekur bæði Icelandair og Flugfélag Íslands.

Þar segir m.a.að farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi hafi verið 25 þúsund í maí, um tvo prósent aukning frá í maí á síðasta ári.

Framboð félagsins í maí var aukið um 6 prósent samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 71,6 prósent og jókst um 1,0 prósentustig á milli ára.

Fraktflutningar í áætlunarflugi jukust um 9 prósent frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 5 prósent miðað við maí 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×