Fótbolti

Ekki liðið sem fer til Frakklands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Heiðar Hauksson og félagar í íslensku vörninni áttu ekki góðan dag í gær.
Haukur Heiðar Hauksson og félagar í íslensku vörninni áttu ekki góðan dag í gær. fréttablaðið/afp
Ísland fékk áminningu í Ósló í gær. 3-2 tap og léleg frammistaða strákanna okkar þrettán dögum fyrir stærsta knattspyrnuleik Íslandssögunnar veldur mörgum áhyggjum. Eðlilega.

Leikurinn byrjaði skelfilega en Stefan Johansen skoraði eftir aðeins 40 sekúndur. Sverrir Ingi Ingason minnti þó á sig með góðu marki með skalla eftir fyrirgjöf áður en Norðmenn refsuðu öðru sinni, í þetta sinn gerði Pål Andre Helland það beint úr aukaspyrnu.

Síðari hálfleikur var skárri en strákarnir fengu samt á sig klaufalegt mark þegar Alexander Sörloth vippaði boltanum yfir varamarkvörðinn Ingvar Jónsson. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði svo sárabótamark úr vítaspyrnu seint í leiknum.

Fyrir leik voru þjálfararnir búnir að vara við því að leikmenn væru í misjöfnu ástandi. Sumir ekkert búnir að spila í margar vikur, aðrir að koma úr meiðslum og enn aðrir sem hafa spilað mjög mikið á síðustu vikum. Síðastnefndi hópurinn kom lítið við sögu í gær og var því sterkasta liði Íslands ekki teflt fram í leiknum.

En miðað við þá áherslu sem þjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson hafa ætíð lagt á í máli sínu er íslenska landsliðið vanafast lið og samheldið þar sem hver leikmaður er sitt hlutverk á hreinu – sama hvað hann heitir.

Það var ekki að sjá á frammistöðunni í gær og fóru leikmenn ekki í felur með það eftir leik að frammistaðan var slök. Þjálfarinn Lars Lagerbäck gerði það ekki heldur.

Óvenjulegt viðhorf leikmanna

„Maður á aldrei að afsaka svona frammistöðu en kannski er hluti skýringarinnar að undirbúningurinn fyrir leikinn var óhefðbundinn,“ sagði þjálfarinn og vísaði til þess að ástand leikmanna var misjafnt. Hann segir þó að það hafi verið óvenjulegt að sjá til íslenska liðsins í gær.

„Við eigum ekki að venjast því að sjá svona viðhorf hjá leikmönnum. Við töpum mörgum návígjum og Noregur vinnur fullt af seinni boltum. Við lásum ekki leikinn. Það er mikið af smáatriðum sem þurfa að vera í 100 prósent lagi en voru ekki.“

En þrátt fyrir allt hafa leikmenn ekki áhyggjur af stöðu mála og það gerir Lagerbäck ekki heldur. „Ég held að þú munir sjá miklu betra íslenskt lið þegar við komum til Frakklands.“

Óvenjulegur Aron Einar

Aron Einar Gunnarsson hefur átt erfitt tímabil eins og kom fram í viðtali við hann í Fréttablaðinu í gær. Óvenjumikil bekkjarseta og meiðsli hafa sett strik í reikninginn og það sást greinilega í gær, sérstaklega í fyrri hálfleik. Aron Einar, sem hefur verið lykilmaður á miðju Íslands um árabil, var nánast dragbítur á liðinu í fyrri hálfleik.

En Lagerbäck nefnir að það sé jákvætt að Aron Einar hafi komist í gegnum næstum heilan leik án þess að finna fyrir meiðslunum og að Kolbeinn Sigþórsson hafi spilað 30 mínútur án þess að finna fyrir hnénu.

„Ég hafði ekki áhyggjur af liðinu fyrir þennan leik og hef ekki áhyggjur eftir hann. Við vitum hvað þetta lið getur og það kæmi mér verulega á óvart ef þeir myndu ekki sýna það í Frakklandi,“ sagði Lagerbäck.

Strákarnir koma heim til Íslands í dag og hefja undirbúning fyrir leik gegn Liechtenstein á Laugardalsvelli á mánudag, síðasta leik strákanna okkar fyrir EM í Frakklandi.


Tengdar fréttir

Aron Einar: Ég get miklu betur en þetta

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var ekki ánægður með sína frammistöðu í kvöld en gladdist þó yfir því að hafa ekki fundið fyrir ökklameiðslunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×