Framkvæmdastjórnin sendir ríkisstjórn Póllands viðvörun Guðsteinn Bjarnason skrifar 2. júní 2016 07:00 Frans Timmermans, aðstoðarforseti framkvæmdastjórnar ESB, og Beata Szydlo, forsætisráðherra Póllands, á fundi í Brussel í byrjun síðustu viku. Pólverjar segja athugasemdir ESB vera alvarleg afskipti af sjálfstæði landsins. vísir/epa
Evrópusambandið (ESB) hefur formlega sent pólskum stjórnvöldum viðvörun vegna breytinga á pólsku stjórnarskránni, sem brjóti í bága við kröfur Evrópusambandsins um lýðræði, réttarríki og mannréttindi. Framkvæmdastjórn ESB gefur pólsku stjórninni fimm daga til þess að bregðast við, að öðrum kosti geti framkvæmdastjórnin opnað á refsiaðgerðir gegn Póllandi sem meðal annars feli í sér að Pólland verði svipt atkvæðisrétti sínum á vettvangi ESB. Hin nýja hægristjórn Laga- og réttlætisflokksins, sem komst til valda í kosningum síðastliðið haust, lét það verða eitt sitt fyrsta verk að breyta stjórnarskrá landsins þannig að ríkisstjórnin geti vikið dómurum úr hæstarétti landsins og sett eigin fulltrúa í dómstólinn í staðinn. Pólska stjórnin vísar hótunum Evrópusambandsins á bug og segir þær alvarleg afskipti af sjálfstæði landsins. Hins vegar er á fréttavefnum Euractiv.com haft eftir Zbigniew Ziobro, dómsmálaráðherra Póllands, að framkvæmdastjórn ESB ætti að vera það fullljóst, eftir langar viðræður, að pólska stjórnin sé að vinna að málamiðlunarlausn: „Ég er undrandi og dapur vegna yfirlýsingar framkvæmdastjórnar ESB, sem hefur átt í rækilegum viðræðum við pólsku stjórnina,“ segir ráðherrann. Frans Timmermans, aðstoðarforseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði á blaðamannafundi í Brussel í gær að pólska stjórnin þurfi nú að bregðast hratt við og sýna raunverulegan vilja til þess að finna málamiðlun. Það hafi ekki tekist þrátt fyrir ítarlegar og uppbyggilegar viðræður sem staðið hafi yfir frá í janúar. „Það er sameiginleg ábyrgð stofnana Evrópusambandsins og allra aðildarríkjanna að sjá til þess að reglur réttarríkisins séu virtar,“ sagði Timmermans. „Þetta er einnig í verkahring framkvæmdastjórnarinnar sem á að gæta þess að farið sé eftir stofnsamningum ESB.“ Árið 2011 fór framkvæmdastjórn ESB með svipuðum hætti í hart gegn stjórn Viktors Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sem hafði þá sett lög sem takmörkuðu frelsi fjölmiðla í landinu. Eftir langar viðræður lét Orban undan og gerði ákveðnar breytingar á fjölmiðlalögunum að kröfu Evrópusambandsins. Á þeim tíma hafði framkvæmdastjórn sambandsins samt ekki þau úrræði, sem nú eru henni tiltæk. Það var ekki fyrr en árið 2014 sem það var samþykkt að hægt væri að svipta aðildarríki Evrópusambandsins atkvæðisrétti virði þau ekki meginreglur réttarríkisins.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Sjá meira