Fótbolti

Svíar komnir til Marseille til að styðja Lagerbäck og Ísland | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Svíar fagna með sínum manni Lars Lagerbäck í kvöld ef hann vinnur.
Svíar fagna með sínum manni Lars Lagerbäck í kvöld ef hann vinnur. vísir/vilhelm
Íslenskir stuðningsmenn hafa látið mikið fyrir sér fara og gert sér glaðan dag í Marseille þar sem íslenska landsliðið í fótbolta mætir því ungverska í stórleik í F-riðli EM 2016 klukkan 16.00.

Fyrir leikinn hitaði stór hluti þeirra 9.000 Íslendinga sem eru mættir til Marseille upp á stuðningsmannasvæðinu við ströndina í hinu svokallaða Fan Zone. Þaðan er um hálftíma ganga á Stade Vélodrome, heimavöll Marseille, þar sem leikurinn fer fram.

Það eru ekki bara Íslendingar sem eru mættir til að styðja íslenska landsliðið heldur Svíar sem voru með sænskan fána merktan Lagerbäck en Lars þjálfaði auðvitað sænska liðið í átta ár með frábærum árangri.

Hér að neðanmá sjá myndasyrpu frá Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Fréttablaðsins og Vísis, frá stemningunni á stuðningsmannasvæðinu.

Leikurinn er í beinni textalýsingu hér.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).



vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×