Fótbolti

Hamsik ætlar ekki að yfirgefa Napoli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hamsik fagnar hér markinu frábæra gegn Rússum.
Hamsik fagnar hér markinu frábæra gegn Rússum. vísir/getty
Þó svo landsliðsþjálfari Slóvaka, Jan Kozak, hafi mælt með því við stjörnu sína, Marek Hamsik, að yfirgefa Napoli þá ætlar hann ekki að hlusta á hann.

Hamsik segist vera hæstánægður í herbúðum Napoli og ætlar að spila með félaginu í að minnsta kosti tvö ár í viðbót.

Hinn 28 ára Hamsik sýndi hvers hann er megnugur er hann skoraði eitt flottasta mark EM í 2-1 sigri Slóvaka á Rússum.

Landsliðsþjálfarinn segir að Napoli sé of lítið félag fyrir hann en því er Hamsik ekki sammála.

„Ég á tvö ár eftir af samningnum og framtíð mín er þar. Við erum í Meistaradeildinni og liðið er á uppleið. Það eru spennandi tímar fram undan,“ sagði Hamsik sem kom til Napoli árið 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×