Fótbolti

Varamennirnir breyttu öllu fyrir enska liðið í sigri á Wales | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daniel Sturridge fagnar sigurmarkinu sínu.
Daniel Sturridge fagnar sigurmarkinu sínu. Vísir/Getty
Varamennirnir Daniel Sturridge og Jamie Vardy tryggði Englendingum 2-1 sigur á Wales og þar með toppsætið í B-riðlinum á Evrópumótinu í Frakklandi.

Gareth Bale kom Wales yfir í fyrri hálfleik með marki beint úr aukaspyrnu af 32 metra færi en Roy Hodgson, þjálfari enska liðsins, skipti bæði Daniel Sturridge og Jamie Vardy inná í hálfleik og það bar árangur því þeir skoruðu báðir.

Jamie Vardy var ekki lengi að jafna metin og Daniel Sturridge skoraði síðan sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.  

Englendingar eru því komnir með 4 stig og á toppinn í riðlinum en Wales og Slóvakía eru með 3 stig. England mætir Slóvakíu í lokaumferðinni en Wales spilar við Rússland.

Gareth Bale kom Wales í 1-0 í lok fyrri hálfleiks með skoti beint úr aukaspyrnu en hann hefur þar með skorað aukaspyrnumark í tveimur fyrstu leikjum velska liðsins á EM.

Englendingar voru miklu betri í fyrri hálfleiknum og Raheem Sterling fékk besta færið. Það var hinsvegar Wales sem skoraði eina markið úr aukaspyrnu af um 32 metra færi en Joe Hart átti að gera þar betur.

Gareth Bale er skeinuhættur skotmaður og markvörður Manchester City réði ekki við skotið hans þrátt fyrir að það hafi verið af mjög löngu færi.

Roy Hodgson, þjálfari enska liðsins, skipti bæði Daniel Sturridge og Jamie Vardy inná í hálfleik og Vardy var ekki lengi að jafna metin. Hann fékk þá boltann frá Ashley Williams, fyrirliði Wales, og skoraði úr markteignum.

Það héldu allir að Vardy væri rangstæður enda langt fyrir innan en síðan kom í ljós að hann fékk boltann frá varnarmanni Wales en ekki samherja.

Enska liðið hélt áfram að sækja og markið kom ekki fyrr en í uppbótartímanum. Daniel Sturridge skoraði þá eftir tilviljunarkennt en árangursríkt samspil ensku landsliðmannanna inn í teig. Sturridge fékk boltann á endanum frá Deli Alli og kom boltanum í markið.

Ensku leikmennirnir fögnuðu gríðarlega í leikslok enda þetta var afar mikilvægur sigur fyrir liðið ekki síst eftir vonbrigðin í lokin á móti Rússum. Nú var lukkan hinsvegar í liðið með þeim ensku í uppbótartímanum.

Bale kemur Wales í 1-0 Vardy jafnar metin Daniel Sturridge skorar sigurmarkið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×