Fótbolti

Forsíður portúgölsku blaðanna: Norræn refsing og íslenskur veggur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Norræn refsing,“ segir á forsíðu portúgalska dagblaðsins O Jogo í dag en þar er vísað til jafnteflis Íslands og Portúgals á EM í Frakklandi í gærkvöldi.

O Jogo reynir þó, líkt og önnur portúgölsk blöð, að taka það jákvæða úr leiknum í Saint-Étienne í gær.

Sjá einnig: Lars um Ronaldo: Hann hélt að þetta yrði auðvelt og því skil ég að hann er mjög svekktur

O Jogo bendir m.a. á að Ítalía 1968, Danmörk 1992 og Spánn 2012 hafi öll byrjað á að gera jafntefli en svo farið alla leið og orðið Evrópumeistarar. Vonast er til að Portúgalir leiki sama leik í Frakklandi.

Record segir að Portúgalir hafi frosið á stóra sviðinu en benda jafnframt á að portúgalska liðið hafi átt 27 skot að marki í leiknum í gær.

Sjá einnig: Falleg forsíða gladdi strákana okkar í Portúgal

A Bola segir einfaldlega að Portúgal hafi hlaupið á vegg í gær og á forsíðunni er mynd af Cristiano Ronaldo fallandi til jarðar.

Hér að neðan má sjá forsíður þessara þriggja blaða.


Tengdar fréttir

Umferð hrundi meðan á leik stóð

Umferðarteljarar Vegagerðarinnar sýna að fáir voru á ferli í borginni í gærkveldi meðan Portúgalir og Íslendingar áttust við i St. Etienne.

Hannes í úrvalsliði 1. umferðar á EM

Hannes Þór Halldórsson átti frábæran leik í marki Íslands þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Portúgal í Saint-Étienne á EM í Frakklandi í gær.

Sagan skrifuð í Saint-Étienne

Íslenska karlalandsliðið spilaði sinn fyrsta leik á stórmóti í gær gegn Portúgal. Í fyrsta leiknum skoraði liðið fyrsta markið og náði í fyrsta stigið. Strákarnir okkar eru komnir aftur eftir hálfs árs runu af slæmum úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×