Viðskipti innlent

Ætla að endurmeta lánshæfiseinkun ríkissjóðs

Vísir/AFP
Matsfyrirtækið Moody´s Investors Service hefur ákveðið að Baa2 lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands verði endurmetin með hækkun í huga. Í því efni verði stefnt að því að meta hvort ný fjármálastefna og fjármálaáætlun fyrir hið opinbera ásamt endurbótum á skattakerfinu muni bæta sjálfbærni skulda til meðallangs tíma.

Þá verði jafnframt metið hvort væntanlegt útboð aflandskróna verði til að draga úr eða halda í skefjum mögulegum veikleikum í erlendri stöðu þjóðarbúsins þannig að almenn losun hafta gangi greiðar fyrir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×