Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi KSÍ, segir að á annað hundrað manns sjái um að gæta öryggis íslenska landsliðsins á EM í Frakklandi.
Ísland leikur sinn fyrsta leik gegn Portúgal í St. Etienne á þriðjudag en hefur síðustu daga æft í Annecy, þar sem liðið hefur bækistöðvar sínar.
„Þetta gengur mjög vel. Við erum búnir að fara yfir þetta með þeim sem sjá um gæsluna og er allt eftir áætlun. Það hefur engu þurft að breyta,“ sagði Víðir en viðtalið við hann má sjá hér fyrir ofan.
Eftir hryðjuverkaárásirnar í Frakklandi og Belgíu hafa öryggismálin verið í brennidepli í kringum Evrópumeistaramótið. En Víðir segir að gæslan í kringum öll liðin, líka það íslenska, sé eins og best verður á kosið.
„Ég hugsa að það séu á annað hundrað manns í kringum þetta hér. Sem dæmi má nefna að við hreyfum ekki bílana okkar án þess að vera í lögreglufylgd og þá eru mótorhjól allt í kring. Það er farið með okkur eins og kónga.“
Þrátt fyrir stranga umgjörð og mikið umfang gæslunnar segir Víðir að það sé góð og afslöppuð stemning í kringum íslenska landsliðið.
„Við leggjum áherslu á að öllum líði vel og hafi gaman. Enda hafa öryggisverðirnir haft orð á því að það komi þeim á óvart hvað það er létt yfir hópnum. Það er allt jákvætt, menn eru brosmildir og tilbúnir að spjalla.“
„Hér er enginn að hlaupa upp í rútu heldur eru þeir komnir hingað til að njóta þess að vera á mótinu.“
Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Á annað hundrað öryggisvarða í kringum íslenska liðið
Tengdar fréttir

EM dagbók: Ég hafði engan eins og Lars
Eiríkur Stefán Ásgeirsson fylgir karlalandsliði Íslands hvert fótmál á Evrópumótinu í Frakklandi og deilir upplifun sinni með lesendum.

Sjáðu strákana okkar syngja afmælissönginn fyrir Heimi í Annecy
Vísir var með beina sjónvarpsútsendingu frá opinni æfingu íslenska landsliðsins í Annecy og það er núna hægt að horfa aftur á hana.

Skrautleg spá fyrir íslenska riðilinn á EM | Myndband
3-3 jafntefli í fyrsta leik Evrópumótsins á móti Portúgal væri alls ekki svo slæmt. Spá Unibet fyrir F-riðilinn á EM í Frakklandi hljómar vel til að byrja með en endar hinsvegar ekki eins vel. Önnur athyglisverð spá hjá hinum franska Pirlo skilar okkur hinsvegar lengra í keppninni.

Fáið EM beint í æð á Snapchat
Fulltrúar 365 miðla eru komnir til Frakklands og er hægt að fylgjast með þeim á samfélagsmiðlum.