Viðskipti innlent

Ís­lenska lands­liðið fékk hamingju­óskir frá Nas­daq

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sjá mátti stóra mynd af íslenska fánanum á Times torgi í morgun.
Sjá mátti stóra mynd af íslenska fánanum á Times torgi í morgun. Mynd/Kauphöllin.
Íslenska karlalandsliðið hefur fengið hamingjuóskir frá Nasdaq kauphöllinni. Stór mynd með hamingjuóskum birtist á skjá kauphallarinnar á Times torgi í New York. Myndin er birt á Facebook síðu Nadaq Ísland. 

Sigur íslenska liðsins á enska landsliðinu í sextán liða úrslitum hefur vakið heimsathygli. Í fréttabréfi greiningadeildar Arion banka segir að árangurinn virðist skapa Íslandi meiri landkynningu heldur en eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 miðað við tölur Google Trends.

Þar segir að ef horft sé til fjölda leitarfyrirspurna um Ísland í vikunni hafi áhugi á landinu 15-20 faldast frá því sem gerist vanalega og aldrei verið meiri. Þá hafi aldrei verið leitað jafn oft að „What to do in Iceland“ og í þessari viku og meira að segja hefur leit að norðurljósum og Íslandi aukist talsvert. Þessi landkynning kann að koma á hentugum tíma þar sem krónan er að styrkjast, einkum gagnvart bresku pundi. Þó má einnig velta því upp hvort hér sé ávísun áframhaldandi hraða fjölgun ferðamanna sem væri ekki endilega af hinu góða.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×